rosamargt stöff
ég mæli eindregið með því að allir þeir sem gaman hafa af lestri kíkji á bóksölu stúdenta því þar er verið að bjóða alls konar bækur á alveg ótrúlega góðu verði. Þarna er hægt að finna klassískar bókmenntir eftir t.d. mark twain, jules verne, sir walter scott, dostoevsky o.fl o.fl einnig er hægt að finna rit eftir ýmsa þekkta spekinga á borð við rousseau, nietzsce (whatþefokk? hvernig skrifar m. þetta? jæja, þið fattið), o.fl o.fl... það besta er að bækurar eru flestar á skitinn 275 - 551 kr! + 5% staðgreiðsluafsláttur. Náði að kaupa 3 bækur á skitinn 1.045 kr. Ekki mikið finnst mér. Fyrir þá sem lesa ekki ensku (og eru á móti heimsbókmenntum) eru þetta aftur á móti lítils vægar upplýsingar.
Ég fór allt í einu að velta því fyrir mér afhverju þetta eru kallaðar heimsbókmenntir. Hvað er það sem gerir bók að heimsbókmenntum? Þarf hún að vera gömul, fræg og skrifuð af evrópubúa? Afhverju ekki evrópskar bókmenntir? Maður finnur vestræna slagsíðu alls staðar.
En já að öðru, það áttu að vera tónleikar á Stúdentakjallaranum á laugardagskvöldið með TommyGun en það verður því miður ekkert úr þeim. Mér skilst samt að ég, Svala og Nick séum að fara að djamma heima hjá mér í Reykjavíkinni. Vinir okkar eru velkomnir að djamma með okkur. Þetta verður mjög líklega mitt síðasta djamm í einhvern tíma eða svona þangað til í maí/júní... shit
og að allt öðru, ég er komin með vinnu! Hún hefst í næstu viku. ég er spennt og ég er glöð. það verður gaman að fara að þéna aftur. þetta er faktískt sumarvinnan mín en ég var beðin um að byrja fyrr. starf mitt felst í því að kveðja alla kanana upp á velli og tilheyrandi stússi.
og já, svo vil ég ítreka það að ég er að fara að syngja á tónleikum á laugardaginn, kl. 5, í Neskirkju, með háskólakórnum. þið megið kaupa miða af mér. það væri gaman að sjá ykkur.

<< Home