Thou art the King of Glory
Ég er með gæsahúð!!! ég er að hlusta á requiem eftir Fauré og þetta er alveg ótrúlega fallegt. Hef ekki gerst svo fræg að hlusta á það áður í heild sinni. Þetta er verkið sem Háskólakórinn er að æfa um þessar mundir og einmitt aðalnúmerið á stórtónleikunum okkar sem verða haldnir núna 1. apríl. Ég mæli eindregið með því að þeir sem hafa áhuga á tónlist komi og hlusti á okkur og leggji góðu málefni lið en tónleikarnir eru einnig fjáröflunarleið fyrir háskólakórinn.
ég held að allir ættu að geta haft gaman af þessu, jafnvel fólk sem hlustar ekki á klassíska tónlist að staðaldri. Það er svo mögnuð upplifun að hlusta á svona falleg verk flutt á tónleikum, tala ekki um þegar tónleikarnir eru í kirkju. Það ætti að fá jafnvel hörðustu rokkara til að mýkjast. Gæti jafnvel opnað fyrir nýja tónlistarsýn hjá ykkur.
Miðaverð er 2000 krónur - munið, þetta er fjáröflun fyrir kórinn og það er alveg rosalega mikil vinna að baki þessu.
Ásamt requiem, munum við flytja annað verk eftir Fauré sem heitir Cantique de Jean Racine eða Heill þér himneska orð á íslensku. Einnig verður flutt verkið Festival te Deum eftir Benjamin Britten en það er alveg í uppáhaldi núna hjá mér. Ég er einnmitt að hlusta á það núna. Það er frekar erfitt og sérstakt verk. Byrjar á hálfgerðum samsöng og lítilli röddun en þegar líður á lagið fer það út í hálfgert brjálæði. Þetta er kjörið verk fyrir fanatíska krisstniboðara sem vilja lofsyngja guð sinn. Þið getið hlustað á verkið hér.
Einnig verða flutt önnur minni verk á tónleikunum.
Okkur til hjálpar munu koma nokkrir frábærir hljóðfærarleikarar og einsöngvarar.
Ekki missa af þessu!
Mér þætti vænt um að sjá sem flesta velunnara og vini mína þarna, fjölskyldumeðlimir eru einnig hjartanlega velkomnir. Þið getið nálgast miða hjá mér.

<< Home