"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

fimmtudagur, ágúst 31, 2006

do re mi fa so la ti do

ok, ALLIR ad fara i inntokuprofin hja Haskolakornum i naestu viku! ok fokk, eg man ekki klukkan hvad thau eru... held thridjudaginn kl.1800 hmmm.... jamm Linda, rosalega god auglysinging hja ther... ludi

ok allaveganna, thad er skemmtilegast i heimi ad vera i Kornum og ef thid eigid enga vini fyrir, tha er pottthett ad thid eignist einhverja vini thar. Einnig ef ykkur finnst skemmtilegt ad drekka afengi og fara a brutal djamm tha er haskolakorinn svo sannarlega malid. Og ja, svo er sungid mikid i kornum... en thad segir sig s.s. sjalft. Vid eigum lika alveg rosa foxy stjornanda sem heitir Tumi, spyrjid bara Horpu.

Haskolakorinn, best i heimi!

|

föstudagur, ágúst 25, 2006

hmmm...

Aetti madur ad skella ser i hellaferd a laugardaginn?

|

mánudagur, ágúst 14, 2006

white ninja

http://www.whiteninjacomics.com/comics/magiclamp.shtml

http://www.whiteninjacomics.com/comics/northpole.shtml

http://www.whiteninjacomics.com/comics/scar.shtml

meira herna

Mer finnst thetta svo ogedslega fyndid... vildi bara deila ast minni a white ninja med ykkur.

|

sunnudagur, ágúst 13, 2006

já ok.

Sleeper Cell er nýji uppáhalds sjónvarpsþátturinn minn... Mjög góðir þættir þar á ferð.

Ég er svo einhleyp að ég horfi á the Notebook ein með hamborgaratilboðinu mínu. HahA! Yndislegt...

Ég er búin að vera horfa óvenjumikið á sjónvarpið upp á síðkastið. Skrítið því ég er ekkert svo hrifin af sjónvarpsglápi. Gott samt að vera löt stundum.

Var samt svaka dugleg í dag. Pískaði bræður mína til og fékk þá til að hjálpa mér að þrífa húsið okkar áður en mamma og pabbi kæmu heim úr helgarferðalagi. Pabbi gaf mér blóm, mamma gaf mér knús. Ég gaf strákunum snickersís og Muggur fékk líka pulsu. Halldór fór í bíó. Allir voða sáttir.

Annars er fólkið heima eitthvað byrjað að kvarta undan mér. Sumir meira að segja lýsa mér sem miskunnarlausum harðstjóra. Er bara orðin þreytt á að vera alltaf að útskýra fyrir bræðrum mínum að ég er ekki húshjálpin og að það sé ekkert sem geri það sjálfsagt að ég þrífi skítinn eftir þá. Meira að segja ma&pa finnst stundum pínu óþægilegt þegar ég byrja að skamma þau fyrir að ala börnin sín ekki betur upp. Þess vegna gaf pabbi minn mér svona Dog Tag-hálsmen um daginn. Á því stendur:"Little Miss Attitude". Óla bró fannst þetta drepfyndið. Man oh man, ég hlakka til að fara til Slóveníu.

Plan mitt í Slóveníu: Vera hip&kúl, vera tipsy, eiga alveg ótrúlega artý elskhuga (ft), lesa mannfræði, hanga á kaffihúsum og bara að þrífa skít eftir sjálfa mig.

|

föstudagur, ágúst 11, 2006

Borgó 2006






|

Svoldið seint - nokkrar myndir frá Finnlandi




|

Myndir - Finnlandsferð með Háskólakórnum






|

gagagagansta!

Langar að gera ekki neitt um helgina. Eitthvað þreytt. Langar að borða pizzu/hamborgara+nammi og kók og þess háttar. Langar að vera ein heima en er eiginlega að passa bræður mína. Passa að þeir haldi ekki partý, verði ekki fullir, borði almennilegan mat. Passa að Muggur gleymi ekki að fara að sofa. Nennekki. Langar í pottinn, nennekki. Það eru partý um helgina, er að hugsa um að forðast þau... er að horfa á sjónvarpið og djöflast í tölvunni í leiðinni, það er bara nokkuð gaman. Jamm alveg hörkustuð.

Heimurinn er eitthvað svo ógnvekjandi. Samt pínu spennandi. Styttist í búferla, undarlegt.

|

miðvikudagur, ágúst 02, 2006

argh!

Blogger er ad fara svoldid i taugarnar a mer thessa dagana. Eg er buin ad vera ad reyna ad posta sama pistlinum i nokkra daga nuna... frekar pirrandi. En, thad tokst a endanum.

|