"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

fimmtudagur, nóvember 27, 2003

Eins og þið kannski vitið þá er ég að fara á svona Evrópuflakk í febrúar. Mér finnst reyndar alveg ótrúlegt að ég sé ekki búin að tala meira um það hér á blogginu mínu. Þetta er svona gróflega planið:

Noregur - Osló
Finnland - Turku, Espoo, Helsinki
Danmörk - Köben og nágrenni
Tékkland - Prag
Ungverjaland - Budapest
ítalía - Mílano
Frakkland - Arles, Montpellier, Toulouse
Belgía - Ninove
England - London, Brighton
Skotland - Edinborg, Aberdeen

Hlutir sem mig langar að gera í ferðinni fyrir utan að hitta fólk og vera túristi:

fara á tónleika hér og þar
fara í óperuhús í Tékklandi og/eða Ungverjalandi
kíkja jafnvel í leikhús í London
Hösla Matt Damon, hann er nebblega á Evrópuflakki næsta hálfa árið og nýhættur með kærustunni ;)

Jæja Brynja, þetta ætti að duga þér næstu daga...

|

ég þoli ekki þegar ég gleymi hlutum. Ég gleymdi t.d. að segja mömmu og pabba frá því að barnabarnið þeirra, sem þau hitta ekki svo oft, hefði boðið þeim á svona ömmu- og afadag í leikskólanum í dag. Núna verða þau líklega að bíða með það í annað ár... æ nei, ég held þetta sé síðasta árið hans í leikskólanum, Shitt. Ætli það séu svona dagar í grunnskólum líka?

ég er alltaf að gleyma öllu...

ég stend mig oft að því að vera að leita af fötunum sem ég er í, t.d. sloppnum mínum eða húfnni minni þegar hún er á hausnum á mér...

Ég þarf að leita að bíllyklunum mínum svona 7 sinnum á dag að meðaltali...

ég gleymi alltaf að setja vinnufötin mín á ofninn...

ég gleymi alltaf að læra fyrir tónfræði...

ég gleymi alltaf hvar ég legg frá mér hluti...

This is the story of my life - ég er gullfiskur

|

Hérna er fokking bloggið þitt Brynja! Ertu ánægð? Ha, HA???

|

laugardagur, nóvember 22, 2003

smá sannleikskorn að hætti Terry Pratchett

..."Oook?"
There was a pause. Then Twoflower said, "You see, last night it occurred to me, I thought, well, the thing is, all this traveling and seeing things is fine but there´s also a lot of fun to be had from having been. You know, sticking all your pictures in a book and remembering things."
"there is?"
"Oook?"
"Oh, yes. The important thing about having lots of things to remember is that you´ve got to go somewhere afterward where you can remember them, you see? You´ve got to stop. You haven´t really been anywhere until you´ve got back home"...
Terry Pratchett, The Light Fantastic


Lesið meistarann, þið sjáið ekki eftir því. Ég mæli með... öllum Discworld bókunum, Small Gods er geðveikt fyndin, góð til að byrja á. Þið þurfið ekki að byrja á fyrstu bókinni, þið getið tekið hvaða bók sem er til að byrja á. Ég vara ykkur þó við, þið gætuð átt í erfiðleikum með að hætta...

|

föstudagur, nóvember 21, 2003

lestarslys og milljón hlaupbangsar

Hafið þið gert köku sem er eins og lest? Ég og Bogga höfum gert það. Ég held við gerum það ekki aftur í bráð... ég er ógeðslega þreytt. Planið er: í náttföt, tannbursta, í rúm, sofa lengi lengi, fyllirí á morgun. Góða nótt.

|

þriðjudagur, nóvember 18, 2003

Hvannanornin á Fíflabæ

„...Hún renndi sér hálfa leið niður brekkuna. Þetta var uppáhalds staðurinn hennar í sveitinni. Brekkan var þakin langri og fagurgrænni hvönn sem gaf frá sér kryddaðan ilm á sumrin. Amanda átti það til að brjóta parta af hvönninni og fylgjast með sniglunum sem höfu tekið sér bólfestu inni í stilkunum. Hún gat aldrei hætt að undrast hvernig þeir færu að því að komast inni í blómið. Hún sat stundum og velti þessu fyrir sér tímunum saman, horfði á þá hreyfa sig silalega, horfði á slímrákirnar sem mynduðust á eftir þeim. Þetta var hennar griðastaður, hennar eigið prinsessuríki.
Stundum fór hún alla leið niður að skurðinum sem rann þarna fram hjá. Henni fannst hann spennandi, sérstaklega eftir að móðir hennar hafði sagt henni að hann var kallaður Drekkingarhylur. Sýslumaður hafði áður fyrr búið á bænum og þar hafði fjöldi kvenna verið teknar af lífi fyrir galdra. Stundum þegar hún horfði á eftir skurðinum hríslast niður túnið, sogaðist hún í fortíðina og varð sjónarvottur að aftökunum. Hún sá konurnar, skítugar og í slitnum fötum, berjast um meðan þær voru færðar í átt að hylnum. Hún sá í andlit þeirra ofan í vatninu og hendur sem þrýstu þeim niður. Oft, á sólríkum degi heyrði hún hvísl sem barst með golunni. Hún vissi að þetta var nornahvísl og að það var hún sem hvíslaði það, úr fortíðinni.“

|

föstudagur, nóvember 14, 2003

farðað flón fíflaskapsins

Síðustu dagar hafa einkennst af einstakri fýlu og pirring af minni hálfu. Ég er búin að vera að pirra mig á öllu og öllum upp á síðkastið, geðvonskan er alveg að fara með mig. Því hef ég ákveðið að draga mig aðeins í hlé frá öllum samskiptum þangað til að þetta er búið að renna af mér. Vonandi verður það á morgun, þetta gengur oftast mjög fljótt yfir. Ekki reyna að spyrja heimskulegra spurninga eins og „hvað er að ergja þig litla snót?“ eða „hvað er að?“.. Það er ekkert að, maður getur bara ekki verið í góðu skapi alla daga.
Þess vegna tel ég það vera góð hugmynd að ég sé ekkert að tjá mig, áður en ég fer að ergja fólk sem ég vil ekki ergja og satt best að segja hef ég ekki áhuga á að ergja neinn... mjög djúpt Linda ;)

S.s. ég ætla að hafa það náðugt um helgina, reyna að ná þessari skítapest og fúla skapinu úr mér. Lesa allar bækurnar sem eru búnar að hlaðast upp hjá mér. Kannski taka til í herberginu mínu. Fara í hressandi göngutúra með ferðageislaspilarann minn. Kíkja kannski á hestanan mína...umm.... og það sem ég hlakka mest til: lesa bókatíðindin! Þetta er örugglega skemmtilegasti póstur sem ég fæ yfir árið (ef ekki eru talin upp póstkort frá vinum og vandamönnum). Ég ELSKA bókatíðindin! Um leið og ég er búin að lesa um allar bækurnar sem mér finnst áhugaverðar get ég farið að hlakka til jólanna... og ég Elska jólin líka!
Kannski ég baki líka bara um helgina...

Satt best að segja þá líður mér bara mun betur eftir að hugsa um þetta allt saman. Ég held mig samt við fyrri plön, ég þarf að hlaða batteríin...

|

sunnudagur, nóvember 09, 2003

fleirerí of fílla

Jæja, helgin tókst líka svona rosalega vel. Aðallinn klikkar aldrei...
Líkami minn er í öskuvondur útí mig, ég hef víst misþyrmt honum aðeins of mikið um helgina. Kannski er þetta merki um það að ég er orðin gömul, víst ég get varla lengur djammað tvo daga í röð.

nenni ekki meir, góða nótt tjúttin mín!

|

þriðjudagur, nóvember 04, 2003

kristinleg kistufræði

Komdu og skoðaðu í kistuna mína.
Kíktu í undirheiminn sem kallast ég.
Gramsaðu þar og rótaðu eins og þú vilt.
Kuklaðu og káfaðu og klóraðu í botninn þar til þú nennir ekki meir.
Rikktu upp lokinu og góndu, góndu á allt draslið sem fyrirfinnst þar.
Hlæðu og gerðu grín og virtu það að vettugi að það er sálin í mér sem þú ert að gramsa í... helvítis fíflið þitt

|

berserkjablús

Berserkir tína ekki blóm og borða ekki ávexti, ég er alveg viss um það.
þeir eru illa lyktandi, með bumbu og loðnir, er það ekki?
Þeir froðufella og bulla, svo segir sagan að minnsta kosti
Þeir borða sveppi,
ég borða ekki sveppi
jú ég borða alveg sveppi en mér finnst þeir bara ekkert góðir
ekkert vondir heldur sko,
berserkir pissa örugglega oft á sig, já örugglega...

|

laugardagur, nóvember 01, 2003

Draumaland er opið frá 02.00-13.00

Kunnið þið að ráða drauma???
Mig dreymdi nefnilega í nótt að vinur minn hefði boðið mér ásamt fleirum til Malasíu eftir að ég var búin í interrailinu. Við náttúrlega skelltum okkur öll saman. Fyrsti staðurinn sem við förum til, er einhver kofi við frumskógarmörk. Við leggjum í leiðangur frá kofanum og ferðin breytist í þvílíka vitleysu, alls konar skrítnir hlutir fara gerast. T.d er ein stelpan tekin og sett upp í hana einhvað prik og togað þannig að tennurnar á henni verða geðveikt framstæðar. Þá man ég ( í draumnum) að hafa séð viðtal við sjónvarpskonuna, þessa ljóshærðu sem er með Loga Bergmann, þar sem hún hefði lent í þessu líka og hún var með ógeðslegar tennur í viðtalinu.

Á meðan þá eru alls konar skrítin dýr að ráðast að okkur en samt er allt mjög bjart í skóginum. Þetta var ekki svona hræðilegur draumur heldur allur mjög einkennilegur. Svo kemur að skrítna hlutanum í draumnum: Við náum öll einhvern veginn að komast í kofann og ákveðum að fara úr landi sem fyrst. Við vorum bara búin að vera í Malasíu í nokkra klukkutíma og við vildum bara fara heim! Allir fara úr kofanum nema ég og þessi vinur minn og þá byrjar þessi rosalega ástarsena hjá mér og honum nema það að ég er allt í einu komin með svona rosalega framstæðar tennur og get ekkert kysst hann!

Eftir það fer draumurinn út í algjöra þvælu þar sem svört villidýr byrja að ráðast að okkur úr öllum áttum meðan hópurinn er að fara úr frumskóginum. Við komumst að því að þorpsbúarnir eru búnir að plana að gefa okkur dýrunum sem fórnargjöf. Á meðan á þessu stendur erum við í hópnum mikið að spá hvort við eigum ekki að gera kvikmynd úr þessari ferð. En í gegnum öll þessi læti get ég ekki hugsað um annað en það hvað mig langar mikið að sofa aftur hjá þessum vini mínum! Hvað merkir þetta eiginlega? Sérstaklega þetta með tennurnar?

|

Ég fór í Skífuna um daginn og keypti út á gjafakortið mitt ( ég vissi að ég myndi ekki eiga í erfiðleikum með það ; ) Að þessu sinni urðu 2 diskar fyrir valinu, I see a darkness með Bonnie “Prince” Billy sem er geðveikt góður og Mama´s Gun með Erikah Badou sem er líka mjög góður. Ég vil koma fram þökkum til Strákanna (þið vitið hverjir þið eruð) fyrir þessa gjöf, takk, takk!.

Ég eyddi gærkvöldinu í að sauma út og horfa á Traffic, veit ekki um marga á mínum aldri sem eyða föstudagskvöldum í þetta. Ég er alltaf að detta ofan í alls konar svona áhugamál og missa mig í þeim, það liggur við að það sé e-ð nýtt í hverri viku. Ég næ samt yfirleitt ekki að festa mig í neinu eða klára neitt. Það kemur í ljós svo hvort ég klári að sauma út þennan dúk. Ég náði að klára að sauma út litla englamynd um daginn sko, en það tók mig um 4 mánuði og mér tókst þetta aðallega á þrjóskunni...

|

sólblóm eru falleg

„... hann tók líkið og þvoði það vandlega, bleytti vel í svampinum, vatt hann og strauk honum létt um líkama hennar. Hann endurtók þetta aftur og aftur, strauk um brjóst hennar háls og bak, stynjandi. Hann talaði við hana blíðum rómi meðan á þessu stóð, sagði henni hvernig hún myndi verða fallegasta brúður í heimi, hvernig þau myndu elskast heitt eftir að athöfninni væri lokið - hvernig hann gæti varla beðið. Hann strauk hár hennar og fléttaði það vandlega, klæddi hana í hvítu nærfötin. „Þú skalt vera hrein þegar við giftum okkur, óspjölluð. Þú ert mín, bara mín“, sagði hann og gaut augunum að brúðarkjólunum. „Engin mun fá að snerta þig nokkurn tíma aftur...“

|