"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

mánudagur, september 29, 2003

Mánudagsröfl

Jæja, helgin heppnaðist líka svona með eindæmum vel. Gerði ekkert á föstudeginum, mér finnst mjög gaman að þurfa ekki að gera neitt og reyni því að gera það eins oft og ég mögulega get...uhm...æ, þið skiljið.
Anywho, á Laugardagskvöldið var svo sprellið. Aðallinn kom saman, át og datt í það. Metþáttaka, mjög gaman, Linda tott ógeðslega full langt fram eftir nótt og fram á morgun eiginlega. (ef ykkur finnst ég vera e-ð stutt í spuna þá getið þið hætt að lesa og drullað ykkur af síðunni minni. Ég held ég sé enn þunn e. Laugard.kvöldið og ég er með ÓGEÐSLEGA túrverki. Ég skal tala meira um það á eftir...)
Ég vaknaði s.s. mjög dösuð kl. 16:12 í gær, ein heima í sófanum hjá Magna og Boggu. Fattaði svo að ég var búin að lofa mér í kaffi í Reykjavíkinni seinni partinn – úff! Frestaði því fram til kvöldsins og horfði á Boggu baka.
Ég þoli ekki hvað Bogga vinkona er dugleg. Á meðan ég svaf af mér gærdaginn fór hún og þreif frystihúsið þar sem við vinnum, bílinn sinn, fór í sund og kíkti í heimsókn. Kom svo heim, bakaði og gerði allt klárt fyrir kvöldmatinn (ég er viss um að ég sé að gleyma e-u). Ég verð að segja að ég dáist af henni, ég gæti ekki áorkað svona miklu á heilli viku!

|

Já, túrverkir... hvaða djöfulsins hálfviti fann þetta helvíti upp? Og hvernig í fjandanum lenti það á okkur kvenfólkinu að þurfa að fá þá? Ok,ok, þið strákarnir hafið standpínuna – mér er drullusama!
Hvernig í fjandanum haldið þið að það sé að vera með logandi verki í iðrunum sem koma í stingandi krampaköstum? Verki sem leiða niðrí tær, um bakið og upp í haus. Maginn á manni er á suðupunkti og maður veit ekki hvort sé betra að strjúka hann eða sleppa því. ALLT sem maður gerir er óþægilegt, hver einasta helvítis hreyfing. þegar krampaköstin ná svo hámarki reynir maður að grípa í næstu stoð svo maður lympast ekki niður í gólf. Bítur í jaxlinn og svitinn sprettur fram úr öllum krókum og kimum líkamans. Skyndilega er krampinn afstaðinn og maður verður alveg máttlaus, ótrúleg vellíðunartilfinning hríslast um líkamann þangað til að maður áttar sig á því; “oh, my god, þetta er að byrja aftur!”. EN, þetta er ekki það eina! Á meðan öllu þessu stendur vonar maður að helvítis dömubindið haldi sig þangað til að krampinn er afstaðinn. Að maður komist á klósettið áður en það verði gegnsósa og fari að leka – það er fátt ógeðslegra en að hafa storknað túrblóð á milli læranna á sér. Málið er að blóðið tollir ekkert í bindinu eða tappanum - það vill komast í lakið.

|

Ykkur finnst ég e.t.v. vera að vorkenna sjálfri mér fullmikið. Mér finnst ég hafa rétt á því að röfla því að ég svaf bara í 2 tíma í nótt vegna túrverkja og óþæginda sem fylgir þeim. Steinsofnaði svo um kl. 5 í morgun eftir að hafa hámað í mig nokkrar verkjatöflu og var enn útúrdópuð þegar ég vaknaði um kl. 7. Þetta ætti nú að vera nóg ástæða f. mig að drífa mig í bólið núna og hætta þessu bulli. Það var samt gott að pústa – djö...er þetta blogg sniðugt fyrirbæri!

|

Bara ein ráðlegging f. ykkur í lokinn: Ekki raka ykkur daginn áður en þið byrjið á túr, ég gleymi þessu alltaf!

Góða nótt öllsömul!

|

föstudagur, september 26, 2003

Gallasouinda

Já ég verð víst að útskýra aðeins tott nefnið... ég var búin að vera að kvarta yfir því við Brynju að hún þurfti að alltaf að útskýra hvaða Lindu hún væri að meina þegar hún var að tala um mig. Ég var orðin þreytt á þessu; æi þú veist Linda systir hans Magna”, eða Linda í Garðinum” eða Linda litla” – LITLA hvað!? Áður en ég vissi var ég orðin Linda tott. Brynja hikaði ekki að segja fólki að hún væri á rúntinum með Lindu tott. En þetta batnaði ekkert fyrir vikið því það fylgdi alltaf í kjölfarið; æi þú veist Linda systir hans Magna... Anywho, ég ákvað bara að taka þátt í gríninu, maður verður víst að hafa smá húmor fyrir hlutunum. Ég hugsa líka að ef ég nota þetta nógu mikið þá fer fólk kannski að gleyma þessum Magna.

|

...í sömu andrá þeystist íkorni framhjá honum og lenti á jörðinni – plaff! Hannes litli skoðaði hræið vandlega áður en hann tók það upp með bros á vör. “Það verður gúllas í matinn í kvöld mamma” sagði hann glaður þegar hann kom inn um dyragættina.

|

Ég á afmæli eftir mánuð og Magni bróðir líka. Bogga er á útopnu hana langar svo að við gerum e-ð í tilefni af því. Magni verður 25 ár og kem til með að halda upp á tvítugs afmælið mitt loksins eftir tveggja ára bið. Það gæti verið gaman, veit bara ekki hvurn djö... við eigum að gera. Endilega komið með einhverjar uppástungur!

|

Góðar fréttir f. alla rokk aðdáendur: Hljómsveitin Electric Eel shock (japanska skrímslið) ætla líklega að heiðra íslendinga með nærveru sinni. Þeir eru mikið að spá í að koma á Airwaves hátíðina á næsta ári, eru reyndar að þeirra sögn mjög spenntir að sjá landið og lýðinn. Geðveikar fréttir! Þeir sem hafa ekki heyrt í þeim ættu að kynna sér þá aðeins. Þetta eru frábærir spilarar með geðveika sviðsframkomu.


|

Jæja, er í mat, er enn í vandræðum með þennan bakgrunn og er búin að vera að pirra mig á því í allan morgun. Djís!


|

Djöfulsins drasl!

ARHHG! hvað er að þessu ansk. djösis... andsktns...helvits... dösins... andsktns... drasli! ég þoli ekki tölvur!
Ég er búin að eyða klst í að gera einhvern friggin´bakgrunn og það bara kemur ekki neitt! fokk it! Ég er farin að sofa, spái í þessu á morgun.

Þetta geðgt flottur svona ælugulur litur, djís mar!

|

Dagur tvö.

Vá, hvað þetta er æpandi litur - djís! Er að gera smá tilraun með bakgrunn og svoleiðis, ég held ég hafi þennan lit ekkert til lengdar en ég læt hann þó vera í nótt. B.t.w það tók mig klukkustund að gera þennan bakgrunn - eða að fatta eiginlega hvernig ég ætti að fara að því. Já, hún er sko þrautseig stúlkan, eða kallast það kannski bara þrjóska?

Jæja dúllurnar mínar, ég ætla að drífa mig í rúmið. Ég þarf að vakna kl. 7 í fyrramálið til að fara snyrta þunnildi (sem ég á til að kalla lausafög, veit ekki afverju), eins og Jói segir - lífið er saltfiskur. Góða nótt öllsömul!

|

miðvikudagur, september 24, 2003

júhú!

Ok, gestabókin er komin þökk sé Andreu. Hvern hefði grunað að hún væri svona mikið tölvuséní. Ef hún hefði ekki gefið sér tíma þá hefði ég aldrei fattað hvernig á að gera þetta og þetta blessaða blogg hefði líklega dáið við fæðingu. Muersí bjúkáw!

|

Smá vandræði

Hvernig gerir mar eiginlega svona gestabók? Hvernig í fjandanum eigið þið eignlega að svara þessu víst það er engin helv... gestabók? hehe. Þið sem getið hjálpað mér sendið mér e-mail eða bjallið í mig!

|

smá próf...

Maðurinn í frakkanum var alveg eins og lemúri í framan, útstæð skringileg augu, oddmjótt nef og v-laga andlit. Hann bar sig illa, smágerður og hokinn. Í alla staði mjög einkennilegur í útliti. Hann stóð samanhnipraður við vegkantinn í skugga á milli ljósastauranna. Það var eins og hann væri að bíða eftir einhverjum, leit stöðugt til hliðar og ræskti sig...

|

Jæja elskurnar mínar, núna megið þið hrósa mér fyrir það hvað ég er ótrúlega dugleg að vera komin með blogg. Ég er búin að vera á leiðinni að gera þetta alveg heillengi, sko. Jibbí!

|

Loksins, loksins! Linda er orðinn bloggari!

|