djö!...æi bla...
Ég verð að segja að kvöldið í gær var alveg með eindæmum vel heppnað miðað við ástandið á mér. Ég stalst til að fara á tónleikana þegar ég átti að vera veik heima. Var veik, bara ekki heima hjá mér. Ég ætlaði að sleppa því að fara, en gat bara ekki hugsað mér að sleppa þessum merkilega atburði (þið sem vitið ekki hvað ég er að tala um þá ér ég að meina Blonde Redhead tónleikana). ég s.s. dröslaði sjálfri mér í Reykjavíkina í algjöru móki, man t.d. ekki eftir að hafa keyrt kafla af Brautinni, allt í einu var ég komin í Hafnarfjörð. Hmmm, hvernig komst ég hingað... Tónleikarnir voru samt hin argasta snilld og alveg þess virði að leggja þetta á mig. Þeir höfðu líka læknandi áhrif tel ég, a.m.k. meðan að á þeim stóð. Þegar ég vaknaði í morgun var ég samt alveg jafn veik - alveg tussu veik ef ég á að segja ykkur satt. Það versta við þetta allt saman er að helv#! sjónvarpið er bilað! Hvern döfulan gerir maður þá? Andskotan ekki neitt...
Nú er bara að bíða og sjá hvernig maður verður á Damien Rice tónleikunum. Lífið er lotterí...

<< Home