"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

mánudagur, september 27, 2004

No. 43-411

Damien og Lisa, bravo, bravo, bravo! Þessir tónleikar voru snilld. Eini ókosturinn við þá var staðsetningin, Nasa er skitinn tónleikastaður.

Annars er það að frétta að ég er blönk, sem er leiðinlegt. Ég veit eiginlega ekki hvernig stendur á því þar sem ég er í fastri vinnu og bý hjá foreldrum mínum. Ég held það sé ráð að fara að finna sér aukavinnu. Ég bara nenni því ekki ef ég á að segja ykkur alveg eins og er. Mig langar samt eiginlega bara mest af öllu til þess að fara einhvert út að vinna í eitt ár. Það er t.d. gamall draumur minn að fara til Írlands að spóka mig. Gæti verið gaman að vinna á litlu sveitahóteli eða á bar. Ég held ég verði samt að rétta úr kútnum áður en ég fer að plana að fara úr landi...

Ég finn fyrir aukinni útþrá þessa dagana þar sem að það er haust, sem er líka leiðinlegt, og af því að stelpurnar (Rósa og Andrea) fóru út á sunnudaginn. Þær ætla að flakka um heiminn næstu 7 mánuði eða svo, ég öfunda þær...

En hey! Ég er a.m.k. að fara í óvissuferð með vinnunni um helgina, ekki þær. Liggaliggalálá!!!

|