"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

sunnudagur, október 10, 2004

Ég ætti í raun að vera að taka til í herberginu mínu núna en ég er svo dugleg að finna mér eitthvað ALLT annað að gera. Þetta er það sama og þegar ég hef verið að læra fyrir próf þá get ég ekki setið á mér, ég hreinlega verð að vaska upp, búa um, skúra eða eitthvað álíka. Ég held það sé kominn tími fyrir mig að fara aftur í skóla... Ég veit samt ekki hvort ég komist yfir það að taka til í kvöld sko, ég held að það sé verið að endursýna CSI á skjá einum, jess!

Annars heppnaðist þessi helgin svona með eindæmum vel. Ég kíkti á tónleika með Hjálmum á Grand Rokk á föstdaginn. Þeir eru æði, tussugóð grúppa. Þetta var bara endalaus hamingja. Fór svo með fríðu föruneyti á 22 og hitti alveg helling af skrítnu fólki, þar með sannaðist kennigin hans Danna að maður á aldrei að treysta konum í vesti. Kellingarbeyglan svoleiðis lumbraði á strákunum á milli þess sem hún þuklaði á þeim og svo blikkaði hún mig eins og við værum bestu vinkonur... Svo var það líka kallinn sem kom og þóttist eiga mig, hann leit svoldið út eins og hann hefði einhvern tíma farið yfirum á ævinni. Hann rauk í burtu í fússi eftir að hafa sagt þessa fleygu setningu;" viltu virkilega frekar vera með þeim heldur en mér?"... uhm já ég tek vini mína fram yfir fúlskeggjaða geðsjúklinga. Svo hittum við líka fjöldamorðingja. Hann stóð á dansgólfinu og hreyfði sig ekki neitt, starði bara í augun á fólki, krípi mar... alveg hreint furðulegt lið á þessum stað, en tónlistin var góð!

Í gær settum við fjölskyldan svo met í nammiáti, keyptum líka 5 spólur á 300 kall stykkið, bara þrælbillegt!

jæja, practice er byrjað, verð að þjóta. Tek til á morgun eða í næstu viku...

|