"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

miðvikudagur, september 21, 2005

"strangers on a train" m. Lovage er nýja uppáhaldslagið mitt

Já það er gaman að vera reykjavíkurmær, ég verð að segja það... Kannski er það gaman því að ég er löt Reykjavíkurmær og geri bara nákvæmlega það sem mig langar til að gera. Ekki allt það sem ég ætti að vera að gera. Úff! Hvar getur maður fengið gefins/ódýran samviskusemispakka?

Ég reyndi að byrja á ritgerð í dag. Skiladagurinn er næsti þriðjudagur. Mér finnst gott að læra heima hjá mér en mér finnst líka gaman að hlusta á tónlist heima hjá mér. Ég er að reyna að sameina þessa tvo þætti í eina heild.... Það gengur misjafnlega vel. Í dag var ég t.d. að hlusta á Mr. Bungle og þetta var afraksturinn:

Frá örófi alda hefur maðurinn haft... hmmm....
Nice inngangur Linda. Prófaðu að skila þessu inn svona...
Kannski er ekki sniðugt að skrifa ritgerð meðan m. hlustar á Mr. Bungle! (ok, ég vil benda blogglesendum á að þetta er það sem ég skrifaði sem part af þessari ritgerðarsmíð... ásamt þessu:)

Knick knack paddywhack and give your dog a bone baby...
I was giving head to some freanch bread...
We came to pottie!!!
Ég hripaði líka niður á blaðið þessa fallegu vísu:

Í holrúminu sat hún, niðursoðin og í kremju.
Hafandi skitið á gangstétina.
Ælulyktin höfug
Hvar er ég?

Hóran í hverfinu
slitnar sokkabuxur og hælsæri.
Gengur fram og tilbaka
tilbaka, tilbaka
í mitt fyrra horf.
Hvað fór úrskeiðis?

Hafandi séð heimin í gegnum raðir fullnæginga
ekki þó sinna eigin...
Sveittir karlmenn sem geta ekki hætt að hjakkast
er þetta veruleiki eða martröð,
hvert fór draumur minn?

Örmagna staulast hún úr holunni.
Rauði kjólinn doppóttur af brundi og svita.

Hallandi sér að hrjúfum húsveggnum
hættir hún að gráta,
lítur upp og sér að hún stendur andspænis dauða sínum.
Dauða alls þess sem hún var áður.

Jamm, spurning um að skila þessu inn og segja kennaranum mínum að þetta sé alternatíf ritgerð og að ég sé að reyna að brjóta upp hið hefðbunda form sem áður hefur tíðkast...

Eða þá að ég ætti bara að fara að drullast til að læra og leita mér heimilda svo ég geti svarað ritgerðarspurningunni: „hvað er félags- og menningarmannfræði?“

Það hljómar bara ekki jafn spennandi...

Ég er þó a.m.k. búin að sækja um sem blaðberi þannig að það er hægt að segja að ég sé búin að aðhafast eitthvað í dag...

|