"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

föstudagur, september 16, 2005

Ældi súkkulaði í dag

ok, það verður enginn stelpuhittingur á morgun því að það eru allir að fara á tónleika á H.punktinum, kannski ég haldi bara kveðjupartý þegar ég flyt út úr íbúðinni í staðinn...

og svo er ég búin að vera veik í allan dag, ömó mar... Ég s.s. brunaði til Suðurnesja því það var svo margt sem ég þurfti að gera í dag: bankinn, Húsasmiðjan, pósthús, bæsa sófann minn og fleira í þeim dúr. Var eitthvað hálf slöpp á Brautinni, kom heim í Garðinn og var alveg að drepast í hausnum, ælandi og allar græjur! Var nú að vakna eftir góðan og mikinn blund... er ekki aldeilis ánægð með þessa útkomu. Það er nýnemakvöld á Gauknum í kvöld, búið að lofa rosa skemmtun, áfengi og húllumhæi... hefði verið ágætisleið til að kynnast þessu fólki e-ð...

Kannski er þetta undirmeðvitundin að segja mér að hætta þessu djammrugli og fara að drullast til að læra. Mér finnst vera miklu meira að gera hjá mér núna en síðustu önn, ég er fegin að ég tók ekki einn aukakúrs eins og ég var að spá í...

Góðu fréttirnar eru þær að ég er kominn með síma. Hann var að fara í hleðslu þannig að hann verður tilbúinn á morgun...

jamm og já, skrallískrú!

|