Lots of luv and lust!
Halló mínu kæru vinir!
Sambandsleysi er alveg merkilegur hlutur! Ég er búin að vera símalaus í nokkrar vikur núna og hef því ekki haft samband við eina einustu manneskju í langan langan tíma. Einu undantekningarnar eru þessi örfáu skipti sem maður fyrir slysni hittir einhvern í skólanum eða úti á götu... Það er alveg ótrúlegt að ég sé ekki búin að missa vitið eða það sem verra er, orðin einmana. Mér leiðist samt stundum því ég á ekki sjónvarp og er ekki enn komin með nettengingu (ég var samt, í þessu, að sækja um tenginguna þannig að hún ætti að koma fljótlega...). Ég er líka ekkert rosalega dugleg að læra, ég verð að viðurkenna það...
Þetta hefur líka gert það að verkum að ég er búin að missa af flest öllum tímunum í þessari viku, búin að sofa yfir mig eða misreikna mig um nokkra klukkutíma (enda með gjörsamlega ónýtt tímaskyn...). Ég mætti þó í ritlist og það var gaman. Skrifaði um nafnið mitt, hvað það þýddi fyrir mig og aðra, hvernig það kom til og svoleiðis. Minnti mig pínulítið á SAM í Fjölbraut, bara skemmtilegra og ég ekki lengur 16 ára...
Ég komst inn í Háskólakórinn mér til ómældrar hamingju en fékk svo að vita það að æfingarnar eru oft á sama tíma og ritlistin. Ég var ekki sátt, ég stóð nefnilega í þeirri trú að æfingarnar væru á mánudögum og það hentaði ákaflega vel... Ég ætla að reyna að redda þessu einhvern veginn...
Ég náði að eyða þremuroghálfum tíma í IKEA í dag. Ég ætlaði að fara þangað og svo að skreppa heim (í Garðinn þ.e.) en klukkan var orðin svo margt að ég sleppti Garðinum. Það er ekki svo sniðugt að keyra Reykjanesbrautina í myrkri þegar maður er ljóslaus að aftan. Brynja mín, þú hefðir s.s. alveg getað komið! man oh man! En jæja, þú ert ávallt velkomin, eins og reyndar allir vinir mínir! Velkomnir eru sjálfboðnir gestir... eða eitthvað álíka...
Og já! Merkilegt nokk! Bandaríkjamenn eru núna alveg búnir að missa það (að mínu mati). Þeir eru fjölmargir núna sem eru að reyna að fá það í gegn að sköpunarsagan (í dulargervi nokkurs sem þeir kalla creative science eða the intellegent design theory eða eitthvað álíka...), s.s að hún verði kennd í skólum landsins sem vísindagrein! Þeir vilja s.s. setja hana annað hvort samhliða eða í staðin fyrir þróunarkenningu Darwins. Mér finnst frábært að fólk trúi á eitthvað en að fara kenna trúarbrögð sem vísindi? Það er alveg jafn fáránlegt og að kenna stærðfræði sem trúarbrögð og setja Pýþagoras upp á stall sem einhverja guðdómlega veru!

<< Home