"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

föstudagur, september 09, 2005

Reykjavíkur-rottan-ég

Var að fá sendan frá Ameríkunni ógeðslega flottan pakka með skólabókum og geisladiskum. Þurfti reyndar að borga tollinum slatta pening til að leysa gjöfina út. Jamm, ég er góð við sjálfa mig og gef mér stöku sinnum pakka frá Amazon...

Nú á ég því nýjan uppáhalds geisladisk eftir einsoghálfsmánaðarMarsVoltamaníu. Gripurinn heitir "Music to make love to your old lady by" og er allt í senn, skemmtilegur, kynæsandi og ótrúlega fyndinn! Svipaður fílingur og hjá kokkinum í Southpark...

Ég er líka officially flutt inn í íbúðina og í tilefni af því þá gistu magniogbogga hjá mér í gærkveldi. Fórum á magnaða tónleika á bar 11 í gær, þar sem Tommygun o.fl. tróðu upp. Með betri tónleikum Tommygun, verð ég að segja...

Ég er svo að hugsa um að skella mér jafnvel á Stúdentakjallarann í kvöld en þar verður alþjóðapartý. Ég er íslenskur tengiliður fyrir skiptinema frá Sviss og ég ætla að reyna að dobbla hana með mér. Sökum símaleysis af minni hálfu hefur það reynst mér erfitt að hafa samband við fólk upp á síðkastið. Ég er búin að senda henni ímeil og vona að hún kíkji á það í dag... hmmm... kíkja ekki annars allir á ímeilin sín dagsdaglega?

Ég er í mergjaðslega spennandi kúrs núna sem heitir Ritlist: að semja skáldsögu (wow! var næstum búin að skrifa: að semja skáldkonu...) En ég er s.s. spennt fyrir þessari önn og sérstaklega þessum kúrs. Nú reynir sko á mann, lokaverkefnið á þessari önn er smásaga og á næstu önn er það drög að skáldsögu og fullkláraður 1. kafli.... úff! Gamaníspagettíjei!!!

Luv jú gaæs!

|