bloggdót
Ég er að hlusta á the Mars Volta live... gæsahúð... bara flott - hrátt, crazy og flott. Ég er samt að reyna að gera mér engar vonir fyrir tónleikana. Það er nefnilega ekki hollt, maður má ekki missa sig. Þetta fer allt eftir dagsformi manns sjálfs og þeirra sem eru að spila. Ég hlakka samt til. Mastodon eru á undan þeim og svo spila the Mars Volta í 3 klukkutíma. Maður má búast við brjálæðislegum köflum þar sem feedbackið lifir, brjálæðislega óskipulögðum hljóðsinfóníum og tveimur dark-krúttum hoppandi út um allt svið og hinir allir að missa sig á hljóðfærin sín. Eins og ég sagði, ég er þvílíkt að passa mig á að vera ekki að gera mér fyrirfram ákveðnar hugmyndir um þessa tónleika, ehemm... en já ef þeir verða ömurlegir þá er það bara þannig. Það eru 30 önnur bönd að spila þarna þannig að... já, og auðvitað yndislegi pöbbinn og viskíið... það má ekki gleyma viskíinu... og öllum sætu indie-kúl strákunum...
My whole life envolves around music and the people associated with it... and that means all the cute boys... (lovage).

<< Home