"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

föstudagur, desember 16, 2005

desemberábótogpúns

Jamm, ég er að fara í próf eftir ca. 12 tíma og ég er hætt að nenna að læra. Má samt ekki hætta því að það eru mjög miklar líkur á því að ég falli í þetta skiptið. Ég ætti það s.s. skilið að falla m.v. áhugaleysið í þessu fagi og þá staðreynd að ég leit fyrst á efnið fyrir alvöru fyrir 3 dögum. Ég er búin að hafa 3 mánuðu að lesa þessar bækur en í staðin þá gaf ég mér 3 daga. Glæsilegt! Ég er líka búin að týna einni bókinni sem ég átti að lesa fyrir prófið. Eitthvað segir mér að ég muni finna hana seinni partinn á morgun undir rúminu mínu. En það skiptir litlu máli, ég hefði hvort eða er ekki náð að lesa allar bækurnar á þessum tíma. Ég er ekki einu sinni búin að klára þá fyrstu. En kraftaverk geta gerst og 12 klukkstundir eru langur tími ef maður nýtir hann vel. Þess vegna blogga ég, því mér virðist vera skítsama. Það er voða lítið sem bærist innra með mér núna. Venjulega fæ ég aukin styrk í kringum prófin og verð ofur skipulögð og einbeitt en það hefur ekkert bólað á því núna... Kannski verð ég í staðin fyrir vitrun á morgun í prófinu. Jamm, ég ætla að stóla á það. Ég myndi taka mér tak og ég veit, að þess er ætlast af mér en ég bara nenni því ekki. Það er gott að vera chillaður en það er kannski ekkert svo gott að vera ofurchillaður og svo kærulaus maður nennir ekki að leggja neitt á sig (ef ekki aðeins til að fá námslánin greidd til að geta borgað upp yfirdráttarheimildina). Augljós kostur við það að vera svona er þó sá að manni gæti ekki verið meira sama og það bólar ekkert á taugaáfalli.

Ég er samt þakklát fyrir að fá tækifæri til mennta mig,
og
þakklát fyrir að hafa lappir svo ég geti dansað,
þakklát fyrir að eiga stól heima hjá mér sem ég get staðið upp á (það er ótrúlega gaman að standa upp á stól, sérstaklega ef maður heldur því til streitu í svolítinn tíma þangað til að maður fer að trúa því að maður sé virkilega svona stór).
Ég er líka þakklát fyrir að geta lesið og geta séð og fyrir að geta hlustað (og fyrir að geta þóst vera að hlusta þegar ég er í raun ekki að gera það).

Jamm margt er gott í heimi hér og hér sit ég klukkan eitt tuttuguogátta að nóttu til og blogga í staðin fyrir að vera að læra fyrir hið úbergeggjaða próf sem ég er að fara í á morgun. Jibbíjei!


...social inequality is reproduced at the symbolic level through the transmission of different kinds of knowledge through socialisation...

...only by constucting the objective curves is one able to pose the question of the mechanisms through which the relationship is established between the structures and the practices of the representations which accompany them...

ég svíf um í draumi hugtaka og kenninga... ég hlakka til að sofa og baka smákökur um helgina.

|