fjólublá pæling
Langleitur skuggi teygði sig niður undan öllum húsgögnum stofunnar. Dempuð birtan frá möttu loftljósinu fyllti rýmið af róandi skuggamyndum sem gáfu mublunum tvöfalda tilvist. Fyrir utan veggina sat nóttin svo undarlega fersk og fögur. Á himnum mátti sjá einstaka titrandi stjörnu, lítinn depill sem erfitt var að ímynda sér að byggi yfir ógurlegur sólarkrafti. Og þó. Bara það að þessi litli depill gæti haldið sér svo hátt á lofti og fyllt mann af svo mikilli lotningu gaf til kynna ógurlegt vald hennar. Norðurljósin voru hvergi sjáanleg, kannski voru þau í fríi.

<< Home