Langur pistill um... ehm... eitthvað
Jamm, maður er enn að jafna sig á ATP flensunni sem ég pikkaði upp í Englalandinu góða. Við náðum hinu fluginu, vorum vægast sagt þreyttar eftir nótt á flugvellinum, illa sofnar og slappar.
A.m.k. er þetta saga að segja frá og við getum hlegið að þessu núna.
ATP martröðin var vægast sagt frábær! Ótrúlegir tónleikar með ótrúlega skemmtilegu fólki. Það sem stóð upp úr var the Locust, mastodon, Saul Williams, Coco Rosie og auðvitað the Mars Volta. Ég var með smá áhyggjur því ég gerði svo miklar væntingar til the mars volta en þeir stóðu sko algjörlega fyrir sínu. Þvílíkt upplifun! Ég lagði það á mig að fara fremst svo ég gæti séð eitthvað, vildi fá að sjá eitthvað meira en bara afróin á hausnum þeirra. Ég varð ekkert smá ánægð því ég sá allt sem var að gerast upp á sviðinu. Man oh man, hvað þetta er flott grúppa. Það var líka gaman að sjá hvað þeir voru mikið á vappinu um tónleikasvæðið, þeim brá fyrir alla dagana að fylgjast með einhverjum hljómsveitum. Þeir virtust samt ekki fá mikinn frið, það var alltaf einhver að labba upp að þeim að reyna að spjalla. Ég spáði mikið í því hvað það hlýtur að vera leiðinlegt að vera frægur og hvað það sé fáranlegt að svona underground grúppa hafi celebs innanborðs, eitthvað sem passar ekki alveg...
En já, það var mikið djammað og djúsað og dansað. Allt í allt vel heppnuð hátíð. Það var líka ótrúlega gaman að hitta allt fólkið: Guggu, Jo, Ben, Rai og Allie. Rai og Ben voru líka æðisleg að leyfa okkur að gista maður. Alltaf að hella upp á te fyrir mann og svoleiðis... lovely!
Ég náði líka að versla helling, flestar jólagjafirnar og nokkrar flíkur á mig - rosa ánægð. Komst í Bizarre hornið í Topshop þar sem ungir hönnuðir spreyta sig og var alveg sjúk. Keypti mér par af buxum og jólakjólinn...
ok... smá útúrdúr hérna, ég heyri fréttirnar í bakgrunninum og er alveg á ælunni. Aðalfréttin í dag er sigur Íslands í Kynbótakeppninni Miss World á meðan mannskætt flugslys er sett einhvers staðar að baka til í fréttatímanum. Það er náttúrlega þannig að líf Afríkubúa virðist með engu móti mikilvægt og þess vegna snertir það okkur mun meira sem manneskjur, að vita að íslenskar stelpur eru voða sætar. Ég meina djöfull erum við góð að forgangsraða!
En já, að öðru. Ég virðist koma sjálfri mér í undarlegar aðstöður trekk í trekk. Ekki hættulegar eða hræðilegar, heldur bara svona undarlegar þar sem ég stend sjálfa mig að því að spyrja mig; hvernig í fjandanu kom ég mér hingað. Vinnudagurinn í gær er eitt dæmi. Maður býst ekki við því áður en maður fer að vinna næturvakt á bar að maður endi heima hjá einhverjum í Hlíðunum að taka við eintaki af óútgefinni skáldsögu til að gagnrýna. En svona er lífið skemmtilegt. Það verður gaman að lesa hana yfir jólin.
úúú og já svo var alveg ógeðslega sætur sænskur strákur að reyna við mig í vinnunni í gær. Það virðist kannski örlítið grunnhyggið að setja það inn í einhvern pistil en mér finnst það með eindæmum merkilegt þar sem það gerist ekki oft að einhver sem maður vill að reyni við sig, geri það. Það er alveg með ólíkindum hvað maður fær gjörsamlega EKKERT feedback frá íslenskum karlmönnum. Það virðist sem að einu skiptin sem þeir nenna að tala við mann er þegar þeir eru svo fullir að þeir standa varla í lappirnar og slefa bara ofan í hálsmálið hjá manni. Þetta veldur því að íslenskar konur eru með engu móti vanar því að taka við hrósi og fara í vörn ef einhver gerist svo djarfur að hrósa þeim, hvað þá ef hann er edrú! Einu karlmennirnir sem sýna manni athygli eru oftast komnir yfir fimmtugt og kalla mann stúlkuna sína - allt voða sætt en frekar niðurdrepandi. Já og ekki má gleyma þjóðverjanum í kakíbuxunum, flíspeysunni, með möllettið og skottið sem var að gefa mér undir fótinn um daginn. Varð svo pínlegt að ég flúði djammið og fór heim þegar hann sá ekki til. Þvílík hetja... þetta er einmitt líka ein af þessum aðstæðum sem ég kem mér í... verð að læra að segja; hey, þú ert ágætur en ég vil ekki snerta þig eða tala við þig í meira en 5 mínútur.
Það er bara eitthvað svo grimmt. Þannig að ég læt mig hverfa og vona að hann muni ekki að ég var svo vitlaus að gefa honum númerið mitt. Kannski ég ætti að skipta um númer...
ótrúlegt hvað maður hefur mikið að segja þegar maður ætti að vera að læra...

<< Home