"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

föstudagur, desember 30, 2005

jókókókó og Lóla Pönk!

Jólin eru ennþá í fullum gangi, aðallega vegna þess að ég á eftir að fá jólafríið mitt. Fer í frí frá blaðburði og Reykjavík á morgun. Fæ líka kalkún á morgun. Ég elska kalkún, aðallega vegna þess að honum fylgir stöffing og stöffing er eignlega uppáhaldið mitt. Það er enn allt óljóst með áramótin. Engin veit um neitt partý, það er allt í pati því paddy´s er lokað. Hvernig ætli ástandið yrði ef Paddy´s myndi loka fyrir fullt og allt... ég fæ hroll við tilhugsunina. Það er merkilegt hvað maður á mikið af kunningjum sem maður hittir yfirhöfuð ekki nema á djamminu og þá oftast á Pöddunni hinni góðu.

En já, lífið er ljúft, ég verð að segja það. Síðustu dagar hafa einkennst af því að gera allt og gjörsamlega ekki neitt á sama tíma (ég er alveg ótrúlega góð í þess háttar hlutum). Þess vegna er ég búin að ná að gera allt glansandi fínt og rústa öllu aftur heima hjá mér á rúmum sólarhringi. Allt eldhúsið er undirlagt fyrir eyrnalokkaframleiðslu en þrátt fyrir það er ég bara búin með 3 pör og 2 hálsfestar. Ég labba um bæin með bakpoka og handpoka fullan af alls kyns dralsi: Sudoku, dagbók, skáldsögu, málningadót, geisladiska og þar fram eftir götunum. Með þessu tryggi ég það að ég geti gert nákvæmlega það sem ég er í stuði til að gera, þegar ég vill gera það. Svo sest ég í makindum inn á 22 og spjalla við fastakúnnana, ég er sjálf fastakúnni og ég vinn þarna - sorglegt... en fallegt.

Mér finnst þetta vera búin að vera góð jól. Maturinn og samkoman ( fjölskyldan mín er hálfgerður sértrúarsöfnuður þegar maður spáir í því), allt heila klabbið var vægast sagt æðislegt. Nautalundir, humarsúpa, frómas....mmmm. Jóladagur fór svo í algjöra afslöppun. Náttföt, sjónvarpsgláp og afgangar. Það besta við þessi jól er að ég á tvær úberskemmtilegar veislur eftir. S.s. gamlárskvöld og svo fjölskyldu get together á sextándanum. Það er verið að reyna að finna húsnæði skylst mér. Við erum ekki nema 70 manns (þá er ég að tala um nánustu ættingja, ömmu afa, og systkyni mömmu og þannig).

Ég held ég fari núna heim og leggji mig. Ég er ekkert að ná að rétta úr sólarhringnum. Svefnvani minn er í fokki og rúmlega það. Sjáumst við á gamlárs? jamm... nema ég spili bara við fjölskylduna mína... það er líka stuð.

|