"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

þriðjudagur, janúar 10, 2006

Dagarnir og skammdegið og yndislegheit

Ég var að komast að því að ef maður leggur eitthvað smá á sig, þá ætti maður að geta fengið bara þokkalegar einkunnir í Háskólanum... Þetta gefur mér von, kannski jafnvel innblástur til þess að fara að líta í bækurnar.

Ég er líka komin með nýtt æði. Eða svona, það fer að byrja - held ég... Það helltist alla vega allt í einu yfir mig alveg óstjórnlega mikil löngun til að fara að stunda líkamsrækt. Ég fékk meira að segja þá flugu í hausinn að það gæti verið gaman... Ég ætla að kíkja í háskólaíþróttahúsið á morgun og tala við góða fólið þar. Það er alveg rosalega ódýrt þarna. 6000 kall árskortið og 1500 kall tíu tíma kort. Innifalið í því eru líkamsræktarsalurinn, allir opnir tímar, gufa og sturtur... Mér finnst þetta góður díll. Ég ætla samt að byrja á tíu tíma kortinu og sjá svo til hvað setur. Það eru meira að segja Tækwondo tímar á miðvikudögum og föstudögum. Ekki má svo gleyma yoga sem er uppáhaldið mitt og eiginlega það sem mig langar helst að fara í.

Ég gerði nýja uppgötvun í dag:

Ég er félagsfælin. Ég hef tekið eftir því að ég reyni sem minnst ég get að eiga samskipti við fólk. Sérstaklega þegar ég er í hóp af fólki sem ég þekki ekki mjög náið (stundum meira að segja í hóp af fólki sem ég er mjög náin...). Það er eiginlega með ólíkindum að ég skuli kynnast fólki yfirhöfuð því að ég reyni aldrei að tala við fólk á fyrra bragði, það er a.m.k. mjög sjaldgæft. Ég tók eftir því þegar ég fór á kóræfingu í kvöld að ég talaði ekki við neinn nema manneskjan kæmi til mín að fyrra bragði og segði eitthvað. Meira að segja reyndi ég oft bara að forðast umræður því ég var ekki í stuði til að vera eitthvað að spjalla. Þetta gerist oft. Ég líka yfirleitt svara ekki símanum ef ég kannst ekki við númerið. Ég hringi heldur næstum aldrei tilbaka ef ég sé missed call.
Ég veit s.s. ekki afhverju ég er eitthvað að spá í þessu. Ég hef alltaf verið svona og samt á ég mikið af góðum og traustum vinum. Það er samt pínu merkilegt að ég sé að læra mannfræði meðan ég eyði svona miklum tíma í að forðast fólk. Það fer víst ekki alltaf saman, áhugi á fólki og áhugi á að tala við fólk.
Þetta er þó kannski heldur einfölduð mynd af þessu öllu saman. Ég er ekkert alltaf að læðast meðfram veggjum og passa mig á að hitta engan. Það koma bara svona dagar þar sem ég er svoleiðis og dagurinn í dag var akkúrat þannig.

En já, lífið er yndisleg. Mér líður næstum því eins og vorið sé að koma og gvuð minn góður hvað ég er búin að sakna þess. Dagarnir fara a.m.k. að láta sjá sig aftur, sem er gott. Skammdegið er ekki alveg my piece of pie... æi þið vitið.

|