"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

mánudagur, janúar 09, 2006

Ljúfílífí og jei!!!

Skólinn byrjaði í dag, sem er eiginlega bara ágætt. Er í kúrs út þessa viku sem heitir menningararfur. Kennarinn er skoskur gestakennari og er víst magnaður sekkjapípuleikari. Hann ætlar að halda tónleika hérna eftir að hann hefur lokið kennslunni, líklega um næstu helgi. Ég væri alveg til að kíkja...
En það var tvennt sem ég uppgötvaði í skólanum í dag:

1. Ég var búin að gleyma hvað sleikjóar eru geðveikt mikil snilld. Ég átti einn í töskunni minni og leið og ég stakk honum upp í mig hrönnuðust yfir mig minningar frá grunnskólaárunum.

2. Það eru engir karlmenn í Háskóla Íslands. Það eru nokkrir strákar hér og þar en ég hef ekki orðið vör við nein karlmenni. Hvar halda þeir sig?

Þriðja uppgötvun dagsins kom svo þegar ég kom við í bensínstöðinni áður en ég fór á bókasafnið í kvöld. Hún var þessi:

Fílakaramellur eru geðveikt góðar og ég trúi ekki að ég hafi verið búin að gleyma því!

Jamm, svona er að vera í háskólanum, maður er alltaf að læra eitthvað nýtt. Talandi um það, þá skil ég við ykkur í bili. Ég er upp á bókasafni og ætla að halda áfram að læra eitthvað sniðugt sem tengist hugtakinu arfleið eða menningararfur... Lífið er skemmtilegt.

Jámm, eitt í viðbót. Ég náði að elda mat sem var ætur í dag OG ég held að ég sé loksins búin að snúa sólarhringnum við og koma svefnvenjum mínum á réttan kjöl. Allt er gott.

|