"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

föstudagur, janúar 06, 2006

Flughítelið, jamm hítelið ekki hótelið...

Í nótt dreymdi mig tvíhöfða hvolp. Hann var ljósbrúnn og mjúkur en með tvö höfuð. Eitt þeirra var í stíl við búkinn en hitt var svart, pínu eins og á Doberman. Ífyrstu fannst mér hann krípí en eftir að hafa tekið hann í fang mér féll ég fyrir honum og varð öskureið yfir því að einhver hefði vanrækt hann svona og skilið hann eftir á miðri Garðbrautinni. Mér var sagt að hvolpurinn væri í eigu lítils stráks sem bjó þarna rétt hjá en þessi sami strákur var óviti og hafði lítinn sem engan áhuga á því að hugsa um þennan hvolp. Ég sá strákinn fyrir mér, lítinn ljóshærðan sveittan og fannst hann hræðilegur, vondur. Ég tók hvolpinn með mér í gamlan vita og gaf honum brauð bleytt upp með mjólk. Þegar ég rölti um svæðið mundi ég eftir því að ég hefði verið þar kvöldið áður og lent í mikilu rifrildi við vinkonu mína því henni fannst sjálfsagt að ég svæfi á gólfinu og eftirléti henni og vini hennar rúmið. Meira man ég ekki af draumnum nema það að ég elskaði þennan hvolp alveg óskaplega og fannst bæði höfuð hans falleg. Þetta var góður og ljúfur hvolpur.
Ég ætlaði að spyrja galdranornina í Garðhúsum útí þennan draum en komst ekki lengra en að segja henni að mig hefði dreymt tvíhöfða hvolp þegar hún sagði mér frá sínum draumi þar sem hún var á fullu að undirbúa börnin sín undir jólball nema hvað að þau voru öll svona skrifanlegir geisladiskar og hún var að pússa þá svo að þeir gætu farið á ballið. Niðurstaða mín: Draumar eru rugl, afbakaðar hugsanir. Stundum skemmtilegir, stundum ekki. Það er alltaf hægt að lesa allt úr engu og ekkert úr öllu. Ég gæti sagt milljón manns frá þessum draumi og fengið milljón útskýringar á honum sem allar væru rangar. Það er samt gaman að ráða drauma, alveg eins og ráða krossgátur eða reyna að skilja þvoglumælt fólk. Vissuð þið að það er hægt að vera þvoglumæltur á táknmáli? Merkilegt!

En já, í tilefni þess að í dag er síðasti dagur jóla ætlar fjölskyldan í Garðhúsum að sameinast hinum nornunum og fjölskyldum þeirra í allsherjar húllumhæ-i í Keflóvíkinni. Amma Soss býður til veislu. Það á víst að vera annáll og völva og fleira skemmtilegt. Samkvæmt ömmu þá má allt verða brjálað... það er klukkutími þangað til og ég er enn á náttfötunum.

|