"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

þriðjudagur, janúar 03, 2006

Holy Moly!

Jamm, það varð víst lítið úr jólafríinu hjá mér. Ég er búin að vera að vinna flest alla daga síðan ég kláraði prófin. Er búin að vera að flakka á milli Svarta Pakkhússins, 22 og þess að bera út. Einn daginn var ég í Garðinum að borða jólamat, hinn að bera út í Reykjavíkinni. Ég náði þó að punga út viku fríi frá fréttablaðinu og var hugmyndin sú að eyða mánudeginum til föstudags heima í Garðinum í vellystingum. Slappa af og hitta vini... Fyrstu tveir dagarnir hafa að einhverju leiti farið í að lesa yfir og gagnrýna bók eftir kunningja minn og er ég nú á leið í bæinn á fund hans. Ég var að átta mig á því að jólafríið mitt sé í raun og veru búið því ég skráði mig í hraðnámskeið sem hefst næstkomandi mánudag og stendur yfir í viku. Ég verð að vera búin að lesa allt námsefnið áður en námskeiðið hefst því ég fer í próf í því eftir svona tvær vikur. Frá og með morgundeginum mun ég því þurfa að sökkva mér í lærdóminn. Þetta er bara það sem ég verð að gera ef ég ætla ekki að fokka upp náminu mínu enn eina önnina. Vera dugleg, dugleg, dugleg... ég hlýt að geta það... En já, ég hef gott af því að fá spark í rassinn og framkvæma, þess vegna skráði ég mig í 23 einingar (í staðinn fyrir 15 eininga normið) á þessari önn. Ég er að vona að það verði til þess að ég skipuleggji mig betur ... við skulum vona það besta.

Sjáumst í vor! Nei, djók... :)

|