Lolita is in heaven, I think...
Miðvikudagar voru einu sinni uppáhaldsdagarnir mínir. Þetta var þegar ég var að vinna svona típíska 8-5 vinnu. Hugmyndin var sú að á miðvikudögum væri svo ótrúlega stutt í helgina en samt alveg þokkalega langt þanað til að næsti mánudagur tæki við.
Þegar maður er í skóla eru hlutirnir einhvern veginn allt öðru vísi maður er eiginlega aldrei að gera neitt eitt sérstakt en samt alltaf með hugann við eitthverja hluti, alla daga vikunnar. Það er a.m.k. mín reynsla.
Í dag áttaði ég mig á því að nýju uppáhaldsdagarnir mínir væru Reykjarvíkur-rottu laugardagar. Ég hef átt þá nokkra síðan ég flutti hingað en áttaði mig fyrst á því í dag hvað þeir eru langbeztir. Þessir daga einkennast á því að vakna útsofin og mygluð, setja góða tónlist á, leggjast aftur upp í rúm og horfa út um gluggan (flestir myndu líklega kveikja á sjónvarpinu en þar sem ég á ekki svoleiðis þá er þetta svona næstum það sama). Eftir þetta fer ég að slæpast heima hjá mér - já það er hægt að slæpast í 29 fermetra íbúð, ótrúlegt en satt! Svo fæ ég mér einhvern morgunmat sem oftast eitthvað óhefðbundið, steikt samloka, saltkringlur, snakk - bara eitthvað sem er til en sem er ekki hafragrautur eða cheerios. Svo hell ég mér upp á alveg ótrúlega góðan kaffibolla. Þegar ég er búin að eiga svona litla athöfn heima hjá mér fer ég út í veturinn og borgina. Þá hittir maður yfirleitt eitthvað skemmtilegt fólk sem er líka á laugardagsvappi. Í dag hitti ég t.d. Guggu, Önnu Katrínu og Mörtu. Þegar ég hugsa út í það var það eiginlega bara ótrúlegt að hitta Guggu mína í dag því hún fer á morgun til Englalandsins og kemur svo aftur með sólinni í vor. Það á vel við.
Næsti liður dagsins er að fara í smekkleysu á eftirmiðdagstónleika. Í dag var rokkabilly, það var gaman að sjá unglinga missa sig og skapa brjálað feedback og tónlistargleði. Ég labbaði út með skemmtilegan són í eyrunum, hann var samt farinn eftir svona ca hálftíma. Ég kíkji líka ávallt í rauða kross búðina, að þessu sinni var þó ekkert keypt. Svo er það ávallt íslenzki markaðurinn - réttara sagt Kolaportið. Þar náði ég að eyða pening, sem ég hefði alls ekki átt að gera, þar sem að bankastaða mín sýnir ekkert nema mínusa. En ég sé ekki eftir neinu því fyrir þær 960 krónur sem ég eyddi í Portinu fékk ég margt flott og frábært:
- 2 lakkrísstangir með súkkulaðihjúp,
- kókósbollu,
- Carpendersplötu
- Plötu með ókunnum mexikönskum hitturum (hits)
- Sinfóníuplötu með rússneskum stöfum sem mér sýnist segja tsjaikovski (veit ekki einu sinni hvernig það er skrifað með svona stöfum...)
- Kertastjaki sem lítur út eins og snjóbolti. Ég er með einn svona heima hjá mér sem fjölskylda mín hefur átt síðan ég man eftir mér. Þeir voru ávallt tveir en annar þeirra týndist/eyðilagðist fyrir löngu. Nú eru þeir aftur tveir.
- Kertasjaki sem er úr gylltum málmi og svona kúlulaga og búið að skera út stjörnur í hann. Það besta er að ég fékk um daginn, í arf frá langömmu minni og langafa, lítinn gylltan kertastjaka sem er eins og lítill diskur sem maður leggur sprittkerti á en hann er einmitt líka með svona útskornum stjörnum. Tveir fallegir saman og komnir á gamla saumaborðið hennar langömmu minnar heim til mín á Suðurgötuna. Langamma og langafi áttu einmitt líka heima á Suðurgötu, í Keflavík.
Það var meira sem mig langaði að kaupa, fleiri plötur og alveg ótrúlega fallegt bollastell sem ég hefði getað fengið fyrir lítið. En lítið er samt eitthvað og ég á eiginlega ekki neitt af aurum. Ég á líka 3 bolla og ég veit ekki alveg afhverju ég þyrfti 6 bolla í viðbót til að drekka kaffið mitt úr...
Nú er laugardagskvöld er tekið við og ég er upp í Odda. Ég ætla að reyna að læra þangað til að mér verður hent út úr byggingunni. Planið er svo að fara í vídeóleigu og taka mynd. Það er eiginlega alveg ótrúlegt en satt en ég hef bara gert það einu sinni síðan ég flutti hingað. Það er alveg kominn tími á það, er það ekki alveg peninganna virði?
Mér finnst ég hafa svo margt annað að segja, þetta er samt orðið meira en nógu langt. Ég ætla því bara að nefna hér þessa punkta:
- Ég var í ótrúlega skemmtilegum og áhugverðum kúrs í síðustu viku sem endaði á því að kennarinn okkar, sem er skoti, spilaði fyrir okkur á sekkjapípu
- The Lowland Bagpipe er núna nýja uppáhaldhljóðfærið mitt. Hún er eins og sekkjapípurnar sem flestir þekkja nema bara mun minni og með mildari hljóm.
- Ég fór í fyrsta skiptið í Tækwondo síðasta miðvikudag, keypti mér kort í íþróttahúsinu til þess að ég geti farið aftur. Ég hef þjáðst af gífurlegum harðsperrum síðan þá sem virðast bara vera að versna með hverjum deginum
- vegna strengja er ferðinni heitið í Vesturbæjarlaug á morgun
- Nýja uppáhaldlagið mitt er Monsters með the Boy least likely to. Ég keypti þennan disk í Englandi því mér fannst hulstrið svo sætt.
- Ég fór í tvö alveg yndisleg heimboð í gærkvöld.
- Ég næ ekki að tengjast internetinu heima hjá mér þrátt fyrir þrálátartilraunir.
- Lífið er blaðburður. Þetta er nýja einkennisorðið mitt.
Ég er farin að læra, sjáumst!

<< Home