...but we ate a lot of cheese...
Helgin var alveg frábær... ég held samt að þetta sé komið fínt í bili. Maður er vægast sagt afkastalítill í lærdómnum eftir tvöfalt helgardjamm. Á föstudeginum fórum við á alveg hreint frábæra tónleika með Tokyo Megaplex og plexuðum feitt allt kvöldið og fram á nótt. Ingi Þór og Rúnar sögðu að ég væri Megaplex Baby, ég tek þá á orðinu. Ég komst svo enn og aftur að því að bar 11 er eini staðurinn með viti í Reykjavík og að kaffibarinn er snobbleiðindapleis með leiðinlegri tónlist. Ég og Rósa María gerðum samkomulag um að venja komu okkar á ellefuna héðan af...
á laugardeginum var farið í Keflavíkina í afmælispartý til Svölu. Það verður nú að segjast að þetta hafi verið vel heppnað teiti: bolla, gaman, skemmtilegt fólk, taumlaus gleði og massa nostalgíuhljómar úr græjunum! Slagarar eins og Nono, no no nono, no no nono, no no there´s no limit!...I like to move it, move it... Don´t want no short dick man.... æi, þið áttið ykkur á stemmningunni. Við stálumst reyndar svo til að spila nokkur "indie cool" lög í smá stund. Það er gott að hafa svona hluti í bland...
Eftir að hafa dansað í partýinu, fór ég niður í bæ. ákvað að labba ein því mig vantaði smá næði til að vera full með sjálfri mér. Komst að því að það eina sem er skemmtilegt við að djamma í Keflóvík eru partýin. Á leiðinni niður eftir var annað hvort glápt, hlegið eða kallað á eftir mér. Var spurð út um bílrúðu hvort ég væri til sölu og svo kom 17 árapiltur og spurði hvort ég hefði áhuga á að sjúga á honum spenann. Ég afþakkaði pent. Ég gerði heiðarlega tilraun til að labba á milli staða, vildi sko tékka á stemmningunni. Beilaði samt á Yello því að það kostaði inn og það var mjög þurrkuntuleg röð fyrir framan mig, sem kunnu ekki að meta litla stelpu í bleikum kjól með rauða slaufu í hárinu, held ég. Ég reyndi að vera kammó og tala við fólkið, en það gekk ekkert vel. Endaði á H-punktinum og dansaði og dansaði, þangað til að ég neyddist til að fara úr skónum... þá dansaði ég upp á borðum og á stól og svo á gólfinu á sokkunum... það var gaman. Fór heim alveg ótrúlega sátt með lífið... Magni og Bogga reyndu samt að eitra fyrir mér. Þau fór á árshátið og skyldu eftir ónýtan mat í ísskápnum, sem ég át alveg með bestu list, á milli þess sem ég sagði upphátt: "Magni og Bogga eru best, það er alltaf til e-ð gott að borða hjá þeim... ég dýrka magna og boggu fyrir að eiga alltaf e-ð aðborða...." Komst að því daginn eftir að bæði kínverski maturinn og pulsupastað var að verða vikugamalt... oj
Fór í heimsókn til ömmu og afa í gær og amma mín gaf mér alveg ótrúlega fallegan rauðan doppóttan kjól. Hún sagði mér að hún hefði keypt hann í Parísartískunni fyrir u.þ.b. 30 árum... Þar með bættist við enn ein kvikmyndastjörnuflíkin í skápinn minn... ég er heppnust.

<< Home