allskonar alternative dót, jei!!!
hey hey hey! undur og stórmerki gerast enn! Ég er (næstum) búin að taka til í herberginu mínu. Er búin að ryðja út úr öllum skápum og þurrka af og ég veit ekki hvað og hvað. Enginn smá léttir...
Annars er ég með alveg úber geðveikt æðislega góðar fréttir. Ég er að fara á All Tomorrow´s Parties!!! Jei jei jei. Ég er búin að bíða eftir þessu núna í næstum ár. Ætlaði í fyrra en það vara verið að ferma bróður minn þannig að ég komst ekki. Hátíðin verður 25 - 27 febrúar og hljómsveitin Slint fær að velja hljómsveitirnar sem spila í ár. Það er hópur af fólki að fara. Ég, Gugga, Svala og Rósa María verðum saman í herbergi. Halli Valli, Ævar, Ingi Þór, Sveinn, Danni og Haffi verða saman í öðru herbergi og svo var ég að frétta að Anna Katrín og Alex ætli líka að fara ásamt vinum sínum þannig að það verður yndislegt að vera þarna. Ef þið höfðuð hugsað ykkur að fara myndi ég bóka sem fyrst því það er að verða uppselt. Það eru bara eftir 4ja og 6 manna herbergi, hin eru pöntuð.
Þið getið fengið frekari upplýsingar hér: http://www.atpfestival.com/index.php
Just what is life? Life is a lot like a hot bath: it feels good while you´re in it but the longer you stay... the more wrinkled you get." - garfield
"Life is like a poker game: If you don´t win... you lose." - garfield
Ég var að enduruppgötva Garfield um daginn, þvílík snilld! Ég mæli með því að þið gerið ykkur ferð á bókasafnið og kíkjið á hann.
jaipa gua...

<< Home