"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

sunnudagur, nóvember 28, 2004

brynjublogg

Ég var skömmuð í gær. Brynja sagði að ég væri lélegur bloggari og að þetta væri svipað og ef einhver væri alltaf að segja "demantur" við mig lon og don... var ekki alveg að fatta hvað hún átti við með því en ákvað skella einu bloggi hingað svona sérstaklega fyrir hana. Það sem ég læt eftir henni...

Ég datt í það í gær, í fyrsta skiptið í meira en mánuð. Er búin að eyða síðustu helgum með nammipoka í kjöltunni, horfandi á videó með mömmu og pabba, voða næs. Var svo beitt miklum þrýstingi og lét eftir stelpunum. Skemmti mér mjög vel, dansaði eins og crazy í háhæluðum skóm og drap næstum á mér lappirnar. Átti erfitt með að labba heim til Petru eftir djammið, það sem m. leggur á sig! ó já, takk Petra enn og aftur f. gestrisnina.

get ekki meir, sorry Brynja. Langar að leggjast niður og gera ekki neitt. dugar þetta í bili?

|