"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

sunnudagur, desember 05, 2004

þrastarskógur.

Helgin er búin að vera meiriháttar vel heppnuð. Ég fór á djammið með vinnufélögunum á föstudaginn og skemmti mér alveg konunglega! Fórum á jólahlaðborð á Ránni, laddi var að skemmta og allt. Hljómsveitin Von var svo að spila þannig að þetta var alveg Grand. Ég ætla hér með að reyna að sannfæra ykkur um að hætta að djamma á laugardagskvöldum og gera það frekar á Föstudagskvöldum. Það er svoooo mikið sniðugara. Þegar maður vaknar þunnur eftir djammið þá getur maður notið þeirrar tilhugsunar að öll helgin er framundan... Eftir ágætan þynnkudag heima hjá Boggu og Magna í gær þá fór ég út á bensínstöð og þreif bílinn minn. Þetta væri eflaust ekki fréttnæmt hjá flestum en hjá mér er þetta stórfrétt! Ég held ég hafi siðast þrifið bílinn minn síðasta gamlárskvöld, eða var það þarsíðasta gamlárs...? Er svo búin að standa í jólahreingerningum í allan dag, allt að verða voða fínt.

Horfði á Beetlegeuse í gærkveldi, var búin að gleyma hvað hún er góð. Brellurnar eru samt mjög slakar, en það er bara fyndið. Ég keypti mér líka nýja diskinn með Mugison. Hann er yndislegur, fallegur, róandi, rómantískur, ögrandi og erótískur allt i senn. Meistarastykki þar á ferð! Mæli með honum.

Jæja, ég held ég noti restina af helginni minni til að horfa á sjónvarpið... skjá-umst!

|