"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

mánudagur, desember 20, 2004

travis n tray

Ég er ekki alveg að fatta hvað það er stuttur tími til jólanna. Ég á enn eftir að kaupa nokkrar gjafir og skrifa jólakort, ef ég á annað borð skrifa þau. Í fyrra var ég alveg ákveðin á því að gera engin jólakort. Á aðfangadag skipti ég svo snögglega um skoðun og fór að föndra, síðasta kortið kom í hús rétt fyrir hálf sex þannig að það er aldrei að vita hvað maður gerir eða gerir ekki þessi jól.

Ég fór í Rkv í gær að versla, það var bara fínt. Fór í Kolaprtið og langaði svoldið að eiga deginum þarna að grúska í gömlum fötum, drasli og vínilplötum. Ég myndi vilja gefa öllum bækur þetta árið en ég efast um að ég hafi efni á því þar sem þær eru svo dýrar. Mér finnst ósanngjarnt hvað er mikið lagt á bækur og geisladiska á þessu landi en það er s.s. gömul lumma og allir örugglega löngu orðnir sammála um það... Fór svo í bíó, á Bad Santa sem er frábær! Billy Bob Thornton er einn af mínum uppáhaldsleikurum og hann var vægast sagt æðislegur í þessu hlutverki. Veit samt ekki hvort að allir hafi smekk fyrir myndinni, hún er svoldið svona... subbuleg ;) En þrátt fyrir subbulegheitin og fávitaskapinn í karakternum sem hann leikur þá fannst mér hann kynæsandi, það er ótrúlegt hvað þessi maður hefur mikil áhrif á mann...

Helgin var annars alveg frábær. Geðveikt djamm þar á ferðinni. Fór í útskriftarpartý til Rósu Maríu. Drakk bollu og borðaði kjúklingabollur, allt æðislegt. Fór svo á ball með Hjálmum og þeir standa sko alltaf fyrir sínu. Ég hafði ekki farið á ball í Stapanum í 2-3 ár og var eiginlega hætt að búast við því að mig myndi nokkurn tíma langa aftur á Stapaball, enda ekki verið almennileg hljómsveit að spila þar í langan tíma. Anyways, ég dansaði af mér hnén og hló mikið þannig að þetta verður að teljat gott djamm.

Að öðru þá eru nokkrar hljómsveitir búnar að boða komu sína á ATP festival í Englandi þar á meðal er íslenska hljómsveitin Múm ásamt Slint, Mogwai, Spoon, Faun fables, Neil Hamburger o.fl.fl en ég kannast satt best að segja eiginlega ekkert við þessar grúppur þannig að framundan eru 2 mánuðir í að kynna sér þessi bönd - jei!!! Ég get varla beðið eftir að fara þangað! Jæja það er ekki til neins að bíða, ætla að fara að grafa upp e-ar upplýsingar og tónlist með þessum hljómsveitum. ciao!

|