"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

þriðjudagur, janúar 18, 2005

almanak... nei! salmíak...nei! æi bla...

Ég sit hérna upp í bókhlöðu, þetta fer að verða annað heimilið mitt bráðum. Háskólalífið á bara ágætlega við mig. Ég ráfa um svæðið og fylgist með fólkinu. Fer á stúdentakjallarann, fæ mér kaffi og sígó því ég er of góðu vön úr vinnunni, nenni eiginlega ekki að standa úti í kuldanum og reykja. Kannski ég hætti bara... læt það ráðast. Það er undarlegt að vera allt í einu kominn á stað þar sem þú þekkir næstum engan, allir sem þú mætir eru ókunnugir, en að vera samt ekki í útlöndum. Þegar maður er í útlöndum þá gerir maður einhvern vegin ráð fyrir að maður muni ekki þekkja neinn. Ég vissi ekki að það væri til svona mikið af ókunnugu fólki á Íslandi. Það færir mér mikla von, verð ég að segja. Nýtt fólk er alltaf skemmtilegt fólk... eða svona oftast...stundum...

Að öðru, þá vann ég mikið afrek í fyrradag. Ég byggði snjóhús! Ég segi „ég" því að þótt ég hafi ekki verið ein þá mokaði ég LANGmest! Kannski ekki skrítið þegar litið er á það að ég var að byggja það með Guðmundi Jökli litla bróður sem er 11 ára og Kristófer frænda sem er 5 ára. En snjóhúsið var alveg geðveikt! 3 Samtvinnuð göng og hola í miðjunni upp úr því. Ég óskaði þess samt á tímabili að ég væri ennþá 5 ára, snjóhús voru einhvern veginn miklu stærri þegar maður var 5 ára. Ég man þá tíð þegar ég gat setið í snjóhúsum. Í fyrradag náði ég í mesta lagi að skríða eftir göngunum. það var samt kósý. Ég ætti kannski að athuga hvort það standi ennþá þegar ég kem heim.

Jæja, ég verð að fara að læra. En fyrst ætla ég að borða nestið mitt! brummbrummphfutsju - JEI!

|