Kveðja frá Grímsey
Wow maður! Ég er að missa vitið!!! Ég er búin að vera með fjörfisk í hægra auganu í margar vikur. Á hverjum degi, oft á dag, byrjar fjörið. Þetta er búið að vera svona síðan snemma í desember. Hversu fáranlega kvilla getur fólk verið með? Pabbi fékk þetta fyrir einhverju síðan og hann var svona í nokkra mánuði. Þýðir það að þetta sé ættgengur kvilli?!?!
Annars þá er ég að fara á nýnemafund í skólanum á morgun, ég er geðveikt spennt! Svo er fyrsta kennslustundin á föstudaginn í „Inngangi að líffræðilegri mannfræði og fornleifafræði“, líka geðveikt spennt. Svo byrjar skólinn bara á fullu eftir helgi, spennt, spennt, spennt,brummbrummprhutsju jei! Ég vona að fjörfiskurinn verði farinn þá...
Við fjölskyldan erum svo búin að vera að spá hvað við eigum að gera fyrir blaðburðarpeningin okkar. Við erum búin að vera að bera út fréttablaðið saman í nokkra mánuði og safna öllum peningnum í ferðasjóð. Planið er að gera e-ð skemmtilegt næsta sumar. Eins og pabba mínum er einum lagið fór hann og grúskaði aðeins í þessu. Valið í dag er á milli þess að:
A: fara til sólarlanda í 2-3 vikur(hljómar ótrúlega spennandi núna í skammdeiginu),
B: fara til Bandaríkjanna að heimsækja fjölskyldumeðlimi,
C: taka bílinn og fara með norrænu og keyra um Evrópu
D: eða fara til Bretlands og leigja bát í viku og sigla um allt í rólegheitum og dvelja svo aðra viku í litlu koti rétt hjá ströndum Wales...
mig langar að gera þetta ALLT! Spurning um að athuga hvort maður geti ekki borið út í auka hverfi um helgina...hmmm... Spurning um að bíða til morguns því þá gæti planið verið eitthvað allt annað og meira spennandi.
djöfulsins fjörfiskur! hverjum datt í hug að kalla þetta fjörfisk, hvar er fjörið eiginlega? Þegar ég fer að spá í því, hvar er fiskurinn eiginlega? Ég ætla að endurskíra þetta „óþolandi langavarandi ættgengur brjálæðiskrampi í hægra augnloki“. Skýrir allt miklu betur.

<< Home