"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

mánudagur, janúar 03, 2005

glapos! Hah!

Halló halló halló! Loksins skrifa ég, þó ég hafi s.s. ekkert merkilegt að segja... Jólin og áramótin eru liðin með öllu tilheyrandi. Það er alltaf e-ð svo kósý við þennan tíma, yndislegar fjölskyldustundir, kræsingar og þessháttar dýrðir. Ekki má heldur gleyma djamminu, það er líka alltaf skemmtilegt. Ég djammaði reyndar ekkert svo mikið miðað við suma ónefnda aðila sem ég þekki. Fór á þrusu skemmtilega tónleika 29.des, með Ælu, Kimono o.fl. þar sem Rocco tróð óvænt upp, við mikinn fögnuð viðstaddra. Allt mjög skemmtilegt og ég mjög hífuð. Þannig á lífið að vera. Gamlárskvöld var líka skemmtilegt. Fyrripart kvölds eyddi ég í faðmi fjölskyldunnar og borðaði fullan disk af stuffingu og sósu - tvisvar! (og reyndar oft næstu daga á eftir). Fór svo í yndislegt stelpupartý hjá Kristínu þar sem hamingjan vall út um og innum alla króka. Við stelpurnar komust ekki yfir það hvað við værum allar frábærar, skemmtilegar og fallegar manneskjur svo ekki væri talað um hvað við værum góðar vinkonur. Það syrti samt aðeins á gleðina þegar ég komst að því að fósturforeldrar mínir á Pöddunni væru búnir að ákveða að hafa lokað yfir áramótin. Hvar í fjandanum er annars staðar hægt að djamma í kef? En það reddaðist samt vel því við enduðum 3 úr hópnum á kojufilleríi fram að morgni.

jamm, hvað annað?...Nú fer senn að líða að því að ég hætti í vinnunni því skólinn hjá mér byrjar 17. des. Ég er ekkert smá ánægð yfir því að vera komin í Háskólann og bara yfir því að ég skuli vera að fara að læra eitthvað! Ég fæ frí í vinnunni á morgun því ég þarf að fara að borga skráningarglaldið (ég held ég hafi aldrei hlakkað jafn mikið til að borga nokkurn skapaðan hlut!). Ætla svo að stússast í öllu í sambandi við skólann, vantar styrki, lán og þessháttar. Ég væri til í að einhver myndi gerast velunnari minn og taka þetta að sér eða það sem betra er gefa mér nokkrar millur... býður sig einhver fram? Nei líklega ekki... Þetta ætti samt allt að reddast með yfirburðum ef ég næ að selja merina mína. Ég veit að það eru komnar a.mk. 3 fyrirspurnir á e-mailinu mínu en ég kemst bara ekki á það hérna heima því það er eitthvað böggles með tölvuna. Merin mín heitir Hnota og er rosa sæt. 7v. jörp meri undan Náttfaradóttur og Emma frá Sperðli. Hágeng og faxprúð. Mjög lagleg. Ásett verð er 180 þús. Hefur einhver áhuga?

|