"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

mánudagur, janúar 24, 2005

mannfræðikenn. e. 3 mín!

Ég var að eyða pening, en það er allt í lagi því ég notaði mastercard og þarf ekki að borga fyrr en mánaðarmótin feb/mars. Það var samt alveg þess virði. Ég keypti mér geisladiska á útsölu með úrvalsfólki eins og Beach boys, Nick drake, Elliot Smith og svo Tim Buckley (er aðeins búin að hlusta á hann og hlakka til að heyra meira). Svo á ég gjafabréf í kringlunni þannig að ég ætti að geta keypt mér 3-4 í viðbót, brummbrummphuhtsju - JEI!

Helgin er nýbúin og mér líður eins og ég sé enn drukkin. Ef ég færi núna á Stúdentakjallarann og fengi mér einn bjór myndi ég líklega rúlla út... Djammið á laugardaginn var mjög skemmtilegt, verð ég að segja. Ég er búin að komast að því að ég er hardcore djammari, svona í þessi fáu skipti sem ég djamma. Kannski er það bara málið, ég djamma ekki það oft og þegar ég loksins geri það þá get ég ekki hætt! Ég var samt næstum því farin snemma heim. Ég var á traffic og ákvað að fara heim, fór að kveðja liðið en Svala og Danni sannfærðu mig um að vera lengur. Eða, það sem sannfærði mig var eiginlega var stóra vískíglasið sem Svala gaf mér. Sem betur fer, því ég skemmti mér konunglega í kjölfarið á því. Takk, Svala!

jamm, ætlaði að segja e-ð meira en man ekki... well, bless í bili!

Hey já! Endilega kikjið á suðsuðvestur á hafnagötunni um næstu helgi. Ég man ekki opnunartímann en það er á einhverjum mjög kristnilegum tíma. Getið líka kíkt á heimasíðuna www.sudsudvestur.is þar eru líklega flestar upplýsingar
Til hamingju enn og aftur Thelma!

|