galdr góðr maðr
jamm barasta búmm!
Ég sit hér í lopapeysunni minni og joggingbuxum, tiltölulega nývöknuð. Ég fór á yndislega tónleika í gær með yndislegu fólki. Borðaði Bacon og Ældi svo á liðið. Fékk mér take-away kaffi á Grand-Rokk sem var alveg upplifun útaffyrirsig, (prófið að þýða útaffyrirsig á ensku, það er fyndið), hrópaði JEAH! en samt ekkert svo flott, (er enn að æfa mig), klappaði og hristi hausinn í takt við tónana, kjaftaði, hló, knúsaði, kyssti, (samt bara á kinnina), og dansaði klósettdans. Sem sagt vel heppnað kvöld að mínu mati. En ég vissi ekki þá að það besta væri enn eftir. Þegar ég keyrði í hlað heima sá ég að frétta- dagblöðin voru komin. Ég fékk mér burritos og skellti mér svo út í blaðburð, í staðin fyrir að leggja mig í 4 tíma og fara svo síðar. Það var hápunktur kvöldsins... Þrátt fyrir öll skemmtilegheitin á Ellefunni í Reykjavíkinni með vinum og vandamönnum, (vá! ég skrifaði fyrst með vinum og vandamálum, merkir það e-ð?), jamm s.s. þrátt fyrir að kvöldið hafi verið success þá var blaðburðurinn hápunktur þess. Ég gekk út úr húsinu, dúðuð frá toppi til táar og gaf mig á vald vetrarstillunni. Heiðskýr himininn var þakinn undurfögrum stjörnum. Mér fannst eins og ég væri ein í heiminum. Ég man augnablik þegar ég var að ganga um sunnubrautina og sá borgarljósin í Reykjavík handan hafsins. Ég man að ég hugsaði "Vá, áðan var ég þarna, nú er allt í einu ég hér..." ekki mjög fleyg og djúp hugsun, ég veit, en samt svo sönn. Ég var allt í einu komin hinum megin við fjörðinn andandi að mér hreinu sjávarlofti hlustandi á ekkert. Á sama tíma voru vinir og vandamenn á hinum endanum hlustandi á brölt borgarinnar andandi að sér vískíilmi. Ég dæsti og gekk glöð frá einu húsi til annars, stolt af því að getað fært fólki helgarblaðið sitt á réttum tíma...

<< Home