"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

þriðjudagur, febrúar 08, 2005

hmm...Samanburð á reðurstærð í Frakklandi og á Íslandi?

uhmmm... fOKK FOKK FOkk FokK! ég er aðeins að panikka hérna.............

Mig vantar ykkar hjálp, elsku fólk. Þannig er nú mál með vexti að ég er í einum kúrs í frönsku í háskólanum, sem er alls ekki frásögufærandi nema fyrir þær sakir að í þessum kúrs eru nokkur verkefni sem ég þarf að skila af mér yfir veturinn. Eitt af þessum verkefnum (eiginlega lokaverkefnið) er ritaður texti sem verður birtur á síðu tungumálastofnuninnar í lok annarinna. Ég á að skila inn uppkasti fyrir þennan texta ekki seinna en á föstudaginn næsta. Vandamálið mitt er að ég er ekki byrjuð á textanum því ég hef ekki glóru hvað ég á að skrifa um! Þetta hefur aldrei komið fyrir mig áður, mér hefur alltaf fundist geðveikt gaman að velja mér umræðuefni fyrir verkefni en þetta verkefni vefst e-ð fyrir mér. Textinn þarf að vera á frönsku og vera á einhvern hátt tengdur námi mínu í mannfræði. Það væri mjög vel þegið ef þið gætuð komið með uppástungur fyrir mig! Takketísplakk!

|