"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

mánudagur, febrúar 21, 2005

Bruuummmm...!

Get ekki fokking beðið!!! Á fimmtudaginn liggur leið mín til englalandsins góða þar sem himneskir tónar munu umlykja mig. Vonandi hitti ég Guð... eða kannski ekki, þarf maður ekki að vera dáinn til þess? Ok vonandi hitti ég ekki Guð en bara alveg helling af englum í staðinn. En samt, Will Oldham er eiginlega Guð, hann er a.m.k. guð með litlu g-i. Ég hef hitt hann, eða þú veist, séð hann á tónleikum og á vappinu í Köben haldandi á korti með bakpoka á leiðinni upp í túristarútu. Jamm, hann er alveg pottþétt guð. Vonandi hitti ég guð eins og Will Oldham, marga, marga svoleiðis.

ok ok ok pælið í þessu: á morgun er þriðjudagur, svo kemur miðvikudagur, svo kemur fimmtudagur og englalandið mitt góða - JEI! Ég hlakka svo mikið til!

|