La Réunion





Já það er alveg ótrúlegt hvað maður er dekraður. Síðustu daga hef ég bölvað því að það sé eiginlega of margt að velja úr...
Mig langar að fara út sem skiptinemi næsta haust og dvelja einhers staðar í einn vetur. Svipmyndirnar að ofan eru frá Réunion, ég hef kost á því að fara þangað. Mig langar en það er eitthvað sem er að bögga mig við það... Ég veit ekki hvað er að mér en mig langar eiginlega bara meira til Manchester, England, England... fara á tónleika, drekka bjór, vera artífartí og hip og kúl, hitta indiekúl gaura... er ég orðin alveg nuts?!?
Ég er ekki alveg að trúa því að ég sé ekki að stökkva á þetta tækifæri að fá að lifa á trópíkalskri eyju við austurströnd Afríku. Rétt hjá fokking Madagaskar! Mig hefur langað að fara til Madagaskar síðan ég fékk óstjórnlegan áhuga á lemúrum fyrir nokkrum árum. Ef þetta hefði boðist mér fyrir ári síðan hefði ég farið án þess að kveðja nokkurn og bara flatmagað á ströndinni á 9 mánuði. Hvað er að stöðva mig? Eru áherslurnar í lífi mínu aðrar nú en áður?
En já, þetta er enn allt í starholunum, ég hugsa málið betur. Það skiptir s.s. ekki máli hvert maður fer í lífinu, lífið er orlof og allt er ævintýr. Maður þarf bara að opna augun og vera opin fyrir öllu sem er í kringum mann.

<< Home