"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

föstudagur, janúar 20, 2006

Landvörsluálfur í sumar? II

Þetta er auglýsingin af síðu Umhverfisstofnunar. Þið verðið að lesa pistilinn sem ég skrifaði á undan ef þið viljið fatta afhvejru ég er að setja þetta hérna inn...

Landvarðanámskeið 2006
5.1.2006
Landvarðanámskeið verður í febrúar og mars nk. Kennt verður í fjarkennslu að hluta. Þátttaka veitir landvarðaréttindi, forgang um landvörslustörf á vegum Umhverfisstofnunar og kostar kr. 75000.-.
Umsóknum skal skilað bréflega til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24 eða í tölvupósti á netfangið ust@ust.is fyrir 5. febrúar 2006. Í umsókn komi fram nafn, kennitala, heimilisfang, sími og netfang. Skilyrði er að umsækjendur hafi náð tvítugsaldri.

Aðallega er kennt um helgar og á kvöldin á virkum dögum.

Nánari upplýsingar veitir Stefán Benediktsson, stefanb@ust.is.

Sjá stundatöflu hér fyrir neðan:


S T U N D A T A F L A N Á M S K E I Ð S I N S

Dags:
Efni og helstu aðferðir.
Tími
1. lota, í Reykjavík, 9. – 12. febrúar – 30 klst.

9.
Kynning á námskeiði.
1 klst
9.
Helstu störf landvarða. Fyrirlestrar, umræður og verkefni.
4 klst
10.
Náttúruvernd, saga, hugmyndafræði. Friðlýsingar, flokkar, einstök svæði m. sérstakt gildi. Fyrirlestrar, umræður og verkefni.
5 klst
11.
Umhverfistúlkun, hugmyndafræði og grundvallaratriði. Fyrirlestrar og verkefni.
3 klst
11.
Menningarminjar. Gildi, verndun. Áhrifavaldar. Einstakir þættir – greining sérstöðu og nýting við fræðslu. Fyrirlestrar og vettvangsferð eftir hádegi.
7 klst
12.
Náttúrufræði, vistfræði. Grunnþættir, hugtök, gildi, verndun. Áhrifavaldar, þolmörk, aðferðir. Einstakir þættir – greining sérstöðu og nýting við fræðslu. Fyrirlestrar og vettvangsferð.
10 klst

2. lota, í Rvík og fjarkennslu, 16. – 17. febrúar – 10 klst

16.
Mannleg samskipti, almennt um samskipti, sjálfsmynd, hindranir, framkoma, ímynd og fleira. Að taka á erfiðum málum. Fyrirlestrar, umræður og verkefni.
5 klst.
17.
Gestir friðlýstra svæða. Ferðamennska, áhrifaþættir framtíðar, ástæða heimsókna á svæði, sýn gesta, þolmörk og viðhorf. Mismunandi hópar og þarfir gesta.
5 klst.

3. lota, í Skaftafelli, 1. - 5. mars – 40 klst.

1.
Farið í Skaftafell
4 klst.
2.
Þemaumhverfistúlkun
10 klst
3.
Umhverfistúlkun, æfingar í gönguferðum og gestastofu. Upplýsingagjöf.
10 klst
4.
Sama
10 klst
5.
Lok umhverfistúlkunar í Skaftafelli, farið heim
6 klst

4. lota, í Rvík og fjarkennslu, 16. – 17. mars - 10 klst.

16.
Stjórnsýsla umhverfismála. UST, hlutverk og staða, verkefni og fleira. Þingvallanefnd, hlutverk og staða, verkefni. Sveitarfélög og aðrir sem koma að rekstri og umsjón. Lög og reglugerðir. Samstarfsaðilar erlendis. Alþjóðasamningar. Fyrirlestar og umræður.
5 klst
17.
Öryggismál. Hlutverk landvarða, boðleiðir, eigið öryggi, öryggi gesta, að þekkja svæðið sitt. Öryggisgreining og öryggisáætlun. Gerð öryggisáætlunar. Fyrirlestrar, umræður, hópverkefni.
5 klst
5. lota, í Reykjavík, 23. – 26. mars – 30 klst.

23.
Fræðsla. Gerð náttúru- og sögustíga
5 klst
24.
Fræðsla. Frh. náttúru og sögustígar. Fræðsluskilti
5 klst.
25
Göngustígagerð. Vettvangsferð.
10 klst
26.
Verndaráætlun, stefnumörkun. Hvað og fyrir hverja? Hagsmunaaðilar. Samráð. Stjórntæki. Fyrirlestrar og vettvangsferð.
10 klst

|