Landvörsluálfur í sumar?
Já, það er allt að gerast þessa dagana. Skólinn byrjaður á fullu og alveg ótrúlega margt áhugavert framundan. Ég er þegar komin langt á leið í einum áfanga, lokaprófið í honum verður í byrjun febrúar. Ég er að reyna að komast í gegnum sem mest af efninu í honum núna, áður en geðveikin í hinum kúrsunum byrjar. Ég sá mig tilneydda til að segja mig úr Ritlistinni. Ég var skráð í 23 eininigar sem er bara allt of mikið. Mér finnst svoldið súrt að geta ekki haldið áfram, en ég verð bara að einbeita mér að mínu námsfagi og láta mannfræðina ganga fyrir. Ég get lært að skrifa skáldsögu á öðrum tíma, annars staðar.
Ég er búin að vera að kynna mér námskeið vetursins. Aðferðafræðin er ekki alveg að heilla mig en það er betra að vera búin með hana sem fyrst. Hinir kúrsarnir eru mjög áhugaverðir. Annars vegar er það Mannfræði þróunar þar sem fjallar verður um þróunarlönd, þróunaraðstoð, fátækt og fleira í þeim dúr. Hins vegar er það svo Líkami og samfélag þar sem verður fjallað um allt mögulegt: öldrun, fæðingar, tákngervingu líkamans, tattoo, erfðarannsóknir, líkamann sem söluvöru, yoga og margt fleira. Meira að segja verður farið í einn yogatíma eða svo með allan bekkinn - til að öðlast dýpri skilning á umfjöllun námskeiðsins :)
En já, yoga er bara best. Ég fór í yoga í gær í fyrsta skiptið í mjög langan tíma og það var mjög nærandi. Ég var að hugsa um að fara í tækwondo í kvöld en þá finnst mér eiginlega eins og ég sé eitthvað að missa mig í líkamsrækt. Ég held að einn leikfimitími í viku sé bara alveg temmilegt... eða kannski er allt í lagi að fara í einn yoga, einn tækwondo á viku. Þess má líka geta að mér leið svo vel eftir yogatímann í gær að ég skokkaði heim til mín - alveg nokkuð hundruð metra. Það er meira en ég skokkaði samanlagt allt síðasta ár.
Ég fer svo suður um helgina. Ég og Bogga erum búnar að ákveða að vera svoldið fullar í tilefni af því að hún hélt ekki upp á 25... ég meina 18 ára afmælið sitt um daginn. Þeir sem vilja taka þátt mega það gjarnan. Það er reyndar kórferðalag um helgina og Japanshátíð og Tour de Skerjó (maraþon djamm á Stúdentagörðunum), en held ég sleppi því bara og fari á Paddy´s...
Ég hef ákveðið að salta umræðuna um skiptinámið. Ég ætla aðeins að ýta þessu til hliðar og taka þetta svo upp aftur seinna og taka þá meðvitaða ákvörðun. Mér sýnist þó á kommentunum að allir vilji að ég fari sem lengst í burtu... En svona að öllu gamni slepptu þá vil ég samt þakka ykkur fyrir hjálpina við ákvarðanatökuna... þetta hjálpaði s.s. ekki mikið en viðleitnin er vel þegin.
Það er önnur hugmynd að krauma í kollinum á mér þessa dagana. Það er landvörðslunámskeið að hefjast á vegum Umhverfisstofnunar eftir nokkrar vikur. Þau eru haldin svona ca á eins og hálfs árs fresti og ég er búin að sleppa þeim í síðustu tvö skipti sem þau hafa verið haldin. Mig langar að skella mér í þetta skiptið. Þá er spurningin: Á ég 75.000 kall í vasanum til að borga fyrir það? Önnur spurningin er sú: Hef ég tíma til að eyða öllum helgum í febrúar og mars í þetta námskeið ásamt einhverjum eftirmiðdögum og kvöldum? Svo er ein í spurning í viðbót: Er ég tilbúin til að missa eitthvað úr skóla og af kóræfingum fyrir það? Síðasta spurningin er svo: Er ég tilbúin til að missa vinnuna á 22 vegna þessa námskeiðs eða réttara sagt: Hef ég efni á því að missa vinnuna?
Þetta er svolítið neikvæðar spurningar allt saman en ég verð að velta þessu fyrir mér. Ég leyni því ekkert að mig langar rosalega á námskeiðið en það eru nokkrir vankantar á þessu öllu saman. Þið megið alveg sýna viðleitni í að leysa þetta mál fyrir mig...
En já, stefna helgarinnar er einnig þessi: Að vera dugleg og að vera ánægð með að vera svona dugleg. Ég ætla að slútta þessu núna og hefja dugnaðinn. Fara heim, læra og vaska upp.

<< Home