"Quand on veut un mouton, c´est la preuve qu´on existe" - le petit prince

sunnudagur, janúar 22, 2006

Lemúrar og pálmatré?

Ég skríð út úr svartnættinu sem einkennt hefur þessar hýðislausu stundir síðasta misseris. Með heljartak á voninni dreg ég að mér prönufylltan sjávaranda dagsins - birtunnar sem hefur ekki sést svo lengi. Aftur og aftur, endurtekning. AB ABC AB. Allt er formúlað. Birtan og svartnættið heyja sína endalausu baráttu, velkjast um í grámyglunni, í hlutleysinu og skiptast á að sigrast. Ég finn hvernig svartbættið deyr smátt og smátt, Dauðinn í mér deyr með því. Allt er gott.

|