Roskilde 2006?

Jæja, þá er fyrsta tilkynningin frá Hróaskeldu komin. Það er alveg ótrúlegt hvað mann langar alltaf að fara þegar hljómsveitirnar fara að tilkynna komu sína. Það er bara eitthvað svo ótrúlega freistandi að kaupa sér farmiða til Danmerkur til að liggja í sólinni, drekka bjór og hlusta á tugi hjómsveita yfir eina helgi...
Fyrstu þrjú nöfnin eru: Franz Ferdinand, Kanye West og Tool.
Mig langar að sjá Tool á tónleikum. Hef aldrei verið svo fræg að sjá þá á sviði... hmmm, er þetta næg ástæða til að fara? Ég held að Tuborg sé næg ástæða til að fara. Það eru 150 bönd á hverju ári, það getur ekki annað verið en að maður finni sér e-ð við hæfi. Peningar eru samt vandamál, eða réttara sagt, það að eiga ekki mikið af peningum getur verið vandamál í þessu samhengi. Jamm, ég ætla að melta þetta aðeins...

<< Home